Heim arrow Upplýsingar arrow Ummæli viðskiptavina
miðvikudagur 8. september 2010
Upplýsingar
Námsörðugleikar
Davis leiðrétting
Um Ron Davis
Ummæli viðskiptavina
Greinar
Söluvara
Fróðleikur
Tenglar
Human Givens ráðgjöf (HGR)
Viltu vita meira?
Staðsetning
Endurgreiðsla
Skólar
Um Betra nám

RSS feed
Fáðu nýjustu fréttirnar
beint á skjáborðið
RSS

Ummæli viðskiptavina   Prenta  Senda 

Image  
Margir deila með okkur reynslu sinni eftir leiðréttingu, og erum við þakklát fyrir það.
Hægt er að hlusta á hljóðdæmi hér.

Smelltu hér til að senda fyrirspurn eða panta viðtal.





Þrúður Sigurðardóttir skráði sig í Human Givens tíma hjá Judith Shaw 6. október 2008.
Sú ákvörðun átti eftir að breyta lífi hennar.

"Ég hafði þjáðst af þunglyndi í 9 ár, og á þeim tíma reynt margt.  Ég gekk til geðlækna og þurfti að nota geðlyf meira og minna allan þennan tíma.  Ég hafði í mörg ár einnig gengið til heimilislækna og eytt hundruðum þúsunda í geðlækni, sem gerði alls ekkert gagn fyrir mig.  Ég bara skil ekki hvers vegna ég fór aftur og aftur.

Ég hafði ekki heyrt af Human Givens áður.  Human Givens er allt önnur nálgun, ég átti alls ekki von á neinu, en gat alveg eins prófað þetta eins og hvað annað.  Þetta kom mjög á óvart, ég öðlaðist nýtt líf hjá þessari konu - og ég segi það öllum sem heyra vilja.

ImageÞetta er í fyrsta sinn í 9 ár sem ég ,,virka" án geðlyfja, og mér líður mjög vel.  Ég er mjög ,,aktív", hef ekki verið svona síðan 1997.

Fólk sem þekkir mig hváir þegar það heyrir að ég sé ekki lengur á lyfjum.  Mér líður rosalega vel, og mér gengur mjög vel.  Þetta er einhver mesta snilld sem ég hef komist í tæri við og ég vildi sjá miklu meiri umfjöllun um Human Givens."

Þrúður fór í einn tíma í októberbyrjun 2008.  Mánuði síðar hitti hún Judith aftur og sagði henni þá að þunglyndið þjakaði hana ekki lengur, hún var hætt á geðlyfjum og jafnframt hætti hún að sækja tíma til sálfræðings.


 
"Vildi bara láta vita að ég er mikill talsmaður ykkar og nýlega kom stúlka til mín og þakkaði mér fyrir að hafa rætt um son minn við hana því hún hafi umsvifalaust séð að dóttir systur hennar sem er 10 ára hafi verið með sömu einkenni. Í framhaldinu fór hún til ykkar og breytingarnar á barninu eru ótrúlegar.
 
Þakka ykkur fyrir aðstoðina!"
-Ómar Svavarsson, faðir.


"Það hefði breytt miklu ef mér hefði verið hjálpað fyrr. Mér finnst eins og tækifærið til að mennta mig hafi verið tekið af mér. Maður var bara málaður út í horn alls staðar og mér var oft sagt að ég væri bara tossi."
-Brot úr viðtali (lesa allt viðtalið hér)


"Áður fóru stafirnir á flakk eða urðu feitletraðir, öll síðan gat farið á flakk - nú get ég stjórnað því. Ég les betur, orðin eru léttari og ég man betur það sem ég les."
-13 ára drengur


"Lesturinn gengur eins og í lygasögu þessa dagana og daman biður daglega um að fá að lesa af því að það er svo gaman."
-Móðir 6 ára stúlku



"Einkunnirnar hækkuðu, sjálfstraustið og sjálfsmatið jókst þvílíkt, og hegðun og félagsleg staða hans batnaði - það má segja að hann hafi eignast nýtt líf."
- Móðir á barnaland.is


"Stjórn á skapi hefur breyst til batnaðar, augun opnuðust upp á nýtt. Ég er farinn að skrifa nýja skrift og kvíði því ekki lengur að aka bíl. Ég er miklu öruggari með mig - en svo er það bara svo margt annað."
-27 ára karlmaður


"Sjálfstraustið hefur aukist og það er skemmtilegra að lesa. Ég á góðar og skemmtilegar minningar úr leiðréttingunni. Hún opnaði nýjar dyr, og sérstaklega fyrir mig þar sem ég er núna í námi erlendis og ég get ekki gert mér í hugarlund hvernig lífið væri ef ég hefði ekki farið í leiðréttingu áður en ég fór út."
- 33 ára karlmaður


"Áður fékk hann lengri próftíma, bauðst að fá hljóðsnældur sem hentaði illa.
Var með 1.-3. bestu einkunnir í öllum greinum eftir leiðréttinguna. Er glaður og með mjög gott sjálfsmat, og þ.a.l. vel liðinn í skólanum. Honum gengur vel að setja sér markmið.

Það batnaði ekki bara lesturinn og skilningurinn, heldur varð hann á allan hátt jákvæðari og ánægðari með sig. Davis leiðréttingin hefur gefið syni mínum betra líf, og aukið möguleika hans á að stefna á hvaða nám sem er. Hann hefur líka lært að það þarf að vinna hart að því að ná árangri."
- Móðir 13 ára drengs

"Árangurinn var ótrúlegur og hann [drengurinn]...loksins trúði hann á sjálfan sig.
Þessi meðferð kostar en ég get ekki metið það til fjár það sem þetta gerði fyrir mitt barn."
-Móðir


Smelltu hér til að senda fyrirspurn eða panta viðtal.





Davis leiðrétting,lesblinda,dyslexia,athygli,einbeiting,námsörðugleikar
lestur,námskeið, lesblinda,hraðlestur,minnistækni,stærðfræði,hugarkort,mind-map
stærðfræði,reikniblinda,margföldun
facebook,fréttabréf um lesblindu
lesblinda dyslexia reikniblinda dyscalculia athygli einbeiting einbeitingarskortur dyspraxia námsörðugleikar
Fagþjónustu undir nafni Davis®; Davis® lesblinduleiðréttingar, Davis® táknmeistrunar, Davis® athyglisþjálfunar, Davis®  stærðfræðimeistrunar og Davis® námstækni, mega þeir einir veita sem lokið hafa þjálfun og fengið leyfisbréf Alþjóða Davis lesblindusamtakanna
- - -
Betra nám - Kjarna, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, s: 5666664, betranam@betranam.is - hafa samband.

lesblinda dyslexia stærðfræði hraðlestur minnistækni mind-map hugarkort Human-Givens

Smelltu hér til að fá frekari upplýsingar