áttu barn sem þarf
HJÁLP Í LESTRI EÐA STÆRFÐRÆÐI?
KOLBEINN SIGURJÓNSSON, LESTRARRÁÐGJÖF OG NÁMSKEIÐ
Velkomin á heimasíðu Betra nám!
Hæ,
loksins ertu hér!
Ég heiti Kolbeinn og hef hjálpað foreldrum og nemendum að ná betri tökum á lestri og stærðfræði í rúm 20 ár. Á þessum tíma hef ég þróað fjölda námskeiða sem eru sérsniðin að þörfum barna og unglinga sem glíma við erfiðleika í tengslum við lestur og stærðfræði.
20 ára sérhæfing í glímunni við lestrar- og stærðfræðiörðugleika
Vönduð fjarnámskeið sem eru einföld í notkun, spara tíma og eru hagkvæmari en einkatímar
Ummæli foreldra og nemenda
Minna hik og meira sjálfstraust
Sonur minn var lengi að læra stafina og að byrja að lesa. Komst ekki af stað fyrr en í mars í 1. bekk. Hann les hægt og hefur alltaf talað um að stafirnir lyftist upp af blaðinu og hreyfist. Í vor rétt náði hann lestrarviðmiði 1 í 2. bekk. Við vildum grípa strax inní og ég var búin að spá að kaupa námskeið hjá Kolbeini frá því fyrra vetur, en lét fyrst verða að því núna!
Æfingarnar eru mjög góðar og það hefur gengið mjög vel. Við sáum árangur strax eftir eina viku. Hann æfði sig 6 daga í röð fyrstu vikurnar og er núna orðinn jákvæðari að lesa heima. Hikið hefur minnkað og sjálfstraustið er orðið meira þegar hann les.
Virkilega vel fram sett og skiljanlegt gott að geta horft á myndböndin aftur þegar það þarf að rifja upp.
Frekar auðvelt og hæglesið, og myndrænar útskýringar sem hentaði mínu barni sem er með málþroskaröskun frábærlega.
Það er ekki spurning að þetta hefur hjálpað og honum finnst stærðfræði ekki eins leiðinleg og honum fannst áður en hann byrjaði, núna þekkir hann aðferðirnar og hugtökin.
Algjör snilld!
Lesum hraðar þjálfunin er algjör snilld!
100%
ÁBYRGÐ
100% endurgreiðsluábyrgð í 30 daga!
Fjarnámskeiðin eru vönduð og þú hefur aðgang að persónulegri aðstoð til að tryggja að ykkur gangi sem best. Ykkar árangur skiptir öllu máli, enda stendur ykkur til boða full endurgreiðsla innan 30 daga ef námskeiðið stendur ekki undir væntingum.
harpa | móðir nemanda
Bara snilld!
Þetta er bara snilld! Sonur minn sem er orðinn 20 ára núna og er lesblindur fór á námskeið bæði í sambandi við lesblinduna og stærðfræðina og þetta gerði kraftaverk fyrir hann!
Ég á örugglega eftir að kaupa aftur fyrir tvo unga drengi sem eiga eftir að nýta sér þetta í framtíðinni. Takk innilega fyrir!
Kærleikskveðja
GREINAR OG FRÓÐLEIKUR
Er barnið þitt lesblint?
Hefur heimalesturinn skilað litlum árangri?
Hvort sem barnið þitt er lesblint eða ekki,
þá eru miklir erfiðleikar í lestri vísbending um
að tími sé kominn á aðra nálgun.
Sérhæfð ráðgjöf og námskeið fyrir nemendur sem eiga erfitt updráttar í skóla. Við einbeitum okkur að lestrar- og stærðfræðiörðugleikum og bjóðum í dag upp á einfaldar og hagkvæmar lausnir í formi heimaþjálfunar fyrir þennan hóp.
Um höfundinn
Kolbeinn Sigurjónsson lærði lesblinduráðgjöf hjá Davis Dyslexia Association og hefur starfrækt Betra nám frá árinu 2004. Kolbeinn hefur sérhæft sig í úrræðum tengdum námsörðugleikum og hefur sinnt þjálfun, kennslu og ráðgjöf um árabil.