
námstækni fyrir framhalds- og háskólanema
VILTU BETRI GLÓSUR OG MINNA LESTRARÁLAGI OG KVÍÐA?
Léttu þér LÍFIÐ með glósutækni sem heilinn elskar.
Nýttu tæknina strax í eigin námi - Engin verkefnaskil eða tímafrekar æfingar.
Ég hefði viljað læra þetta fyrir 20 árum!
Ólafur Geir // Laganemi
Lestur
Lágmarkaðu lestrarálagið og auðveldaðu þér að finna lykilatriði í námstexta.
Glósur
Betri glósur sem taka mið af því hvernig heilinn vinnur úr upplýsingum og skrásetur í minni.
Próf
Upplifðu kvíðalausan prófaundirbúning með mun minni upprifjunarlestri.
Námstækni margborgar sig
Þú lærir hana einu sinni - og notar aftur og aftur!
Viltu minnka lestrarálag?
Ertu með lesblindu eða ADHD?
Áttu erfitt með að finna aðalatriðin í texta?
Finnst þér erfitt að setja hluti í samhengi eða leggja upplýsingar á minnið?
Eru glósurnar þínar óskipulagðar?
Finnur þú fyrir mikilli streitu eða kvíða fyrir próf?
Bara eitt fall jafngildir vinnutapi upp á hundruð þúsunda
Námstækni er fjárfesting sem borgar sig - aftur og aftur!

frá nemanda | svar úr könnun
Ég skil ekki glósurnar mínar!
Ég glósa of mikið og skil ekki glósurnar mínar. Námsefnið fer í hringi og ég næ ekki að setja námsefnið í samhengi. Ég eyði allt of miklum tíma í að glósa allt sem ég sé. Ég ofhugsa hlutina og á það til að skrifa allt of mikið og eyði þess vegna of miklum tíma í hluti sem skipta ekki máli.
"Lærði mjög mikið!"

Verð að hrósa Kolbeini hjá Betra nám fyrir frábært prógramm. Ég lærði mjög mikið sjálfur sem hefði auðveldað mér námið á mínum námsárum.
Í Glósuskólanum eru kenndar aðferðir sem létta nemandanum lífið til muna og lærdómurinn verður markvissari. Mun meiri athygli fer að ná aðalatriðum í lestrinum. Undirbúningur fyrir próf verður árangursríkari og gríðarlegur tími sparast með því að fylgja þeim aðferðum sem eru kenndar á námskeiðinu.
Halldór Þorsteinsson / Kennari og viðskiptafræðingur
Námstækni borgar sig margfalt. Námstækni þarf hvorki að vera flókin né kostnaðarsöm. Engin áhætta fylgir því að bæta námstæknina, því þú færð hana margfalt til baka. Er ekki kominn tími til að þína stærstu fjárfestingu í lífinu alvarlega - menntunina þína?
Prófkvíði, lesblinda eða ADHD?
Kvíði dregur verulega úr náms- og minnisgetu. Prófkvíði og fullkomnunarárátta veldur því að margir byrja of seint að læra fyrir próf eða verkefni, sem veldur svo enn meiri kvíða og vítahringur skapast.

Þjáist þú af prófkvíða? Svör nemenda úr könnun Betra náms segja sína sögu, þar sem uþb. 70% finna oft fyrir prófkvíða.
nánari upplýsingar - vertu með!
Námstækni er líka fyrir þá sem gengur vel í námi
Námstækni gagnast öllum, á öllum skólastigum. Námstækni snýst einfaldlega um að nota skilvirkari leiðir við námið. Hvers vegna að vera lengi að læra þegar þú getur verið fljótari? Hvers vegna að þjást af streitu og prófkvíða þegar betri vinnubrögð geta bætt líðanina verulega?
"Ég er með ADHD, er námstækni fyrir mig?"
Já, að sjálfsögðu. Ef eitthvað er, þá ættir þú að læra námstækni, einmitt VEGNA þess að þú ert með ADHD eða lesblindu.
Glósuaðferðirnar henta þessum hópi einmitt sérstaklega vel, þar sem þær geta dregið verulega úr lestrarálagi og hjálpað þér í glímunni við lesfögin.
Flestir viðskiptavina Betra náms hafa glímt við lestrar- eða námsörðugleika - Að lesa hægt og gleyma því sem lesið er, hrjáir fleiri en þig grunar. Glósutækni getur skipt sköpum fyrir þessa nemendur, vilji þeir komast í gegnum bóklegt nám.
Hvað viltu bæta í þínu námi?
Könnun okkar varpar ljósi á þá þætti sem trufla nemendur mest í námi. Tengir þú við þetta?
Mun 100% nýta mér!
Mjög góð námstækni miðluð af þekkingu á einfaldan hátt. Frábært! Talar mannamál og kemur hlutunum vel til skila. Myndir og uppbygging myndbandanna virkilega góð og lengdin fullkomin, þannig að einbeitingin helst út myndbandið. Frábært að hafa svona "litla skammta" svo það þurfi ekki að klára allt á einu bretti. Ég mun 100% nýta mér þetta, ég hef ekki [glósað] rétt hingað til og þetta mun klárlega nýtast mér, í mínu mjög svo krefjandi námi. Takk fyrir mig! :)
Námstækni á að einfalda hlutina - ekki flækja þá!
Ert þú veikasti hlekkurinn í þínu námi?
Keðjan er ekki sterkari en veikasti hlekkurinn. Í námi er veikasti hlekkurinn oft....við sjálf!
Fyrsta skrefið í átt að betri útkomu, er því að bæta okkur sjálf. Að læra glósutækni bætir ekki bara námsfærni þína, heldur eykur hún líka skilning þinn á heilastarfseminni sem hefur auðvitað beint með námsárangur þinn að gera.

Án glósutækni er líklegt að þú upplifir:

Fjarnámskeiðið í námstækni
Við kynnum GLÓSUSKÓLANN!
Glósuskólinn byggir á þaulreyndum aðferðum sem Kolbeinn Sigurjónsson hefur bæði kennt um árabil og notað sjálfur. Þessar aðferðir hafa reynst breiðum hópi nemenda á öllum aldri sérstaklega vel.
Glósuskólinn er 100% fjarnámskeið þar sem öll kennsla fer fram á stuttum, skýrum myndböndum.
Allir nemendur hafa lesið, glósað og lært. Það skiptir ekki máli hvort þú ert í almennum framhaldsskóla, lögfræði eða læknisfræði, þú getur notið góðs af því sem þú lærir í Glósuskólanum.
Hefði viljað læra fyrir 20 árum!
Þetta á eftir að muna gríðarlega miklu þegar maður hefur náð tökum á þessu og þjálfað færnina. Hefði viljað gera þetta fyrir 20 árum 😊
Mun nýtast mér í krefjandi lögfræðinámi sem ég er í núna, enda er all svakalegur lestur í því námi.
Mér fannst þetta mjög skýrt og ekkert vantaði. Það mun heldur betur nýtast mér að lesa minna og að geta glósað helstu atriðin í textanum.
Þetta lærir þú í Glósuskólanum
Taktu námið föstum tökum með því að læra nýja hluti og verða enn betri í því sem þú kannt fyrir.

Lestur
Lærðu að finna lykilatriði í námstexta með markvissari hætti, og minnka lesefni til prófs verulega, allt að 90%.

Glósur
Við kryfjum hugarkort til mergjar og þú lærir að gera kort sem dýpka skilning þinn á námsefninu.

Upprifjun
Góð minnisspjöld gegna lykilhlutverki í upprifjunum fyrir próf. Lærðu að gera minnisspjöld sem virka.
Efnishlutar námskeiðsins
hvers vegna að nota námstækni?
lestur - yfirstrikanir & niðurskurður lesefnis
HUGARKORT - SAMHENGI & SKILNINGUR
minnisspjöld - upprifjanir fyrir próf
aukaefni
Efnishlutarnir eru birtir með fyrirvara um breytingar á efnistökum námskeiðs. Heiti efnishluta gæti hafa breyst. Efnishlutar gætu hafa bæst við, verið fjarlægðir eða breytt.
GLÓSUSKÓLINN

100% fjarnámskeið
Engin mæting, enginn akstur. Þú færð aðgang að öllu efni og lærir í tölvunni heima þegar þér hentar.

framhalds- og háskóli
Glósuskólinn hentar þér hvort sem þú ert byrjandi í glósutækni eða hefur glósað árum saman. Þú getur ekki tapað á því að læra nýja hluti eða sjá gamla hluti í nýju ljósi.

100% endurgreiðsluábyrgð
Það fylgir engin áhætta skráningu í Glósuskólann. Það er 100% endurgreiðsluábyrgð í 30 daga frá skráningu.

SKRÁNINGARTILBOÐ
Ég er ein af þeim sem fór auðveldlega í gegnum grunnskóla og var semidux á stúdentinum, en lenti á vegg í lögfræðinni. Ég er búin að prófa allar þessar aðferðir, en hef klárlega ekki beitt þeim rétt miðað við þessi myndbönd. Ég hlakka til að halda áfram og er viss um að þetta muni nýtast mér vel. Mjög flott video sem útskýra hlutina vel.
vinsælt!
EINGREIÐSLA
27.930.-
39.900.-
TVÆR GREIÐSLUR
22.500.-
Samtals kr. 44.500-
Örugg greiðslumiðlun. 100% endurgreiðsluábyrgð í 30 daga frá skráningu.

Kolbeinn Sigurjónsson
Betra nám
Um höfundinn
Kolbeinn Sigurjónsson hefur starfrækt Betra nám frá árinu 2004. Betra nám hefur veitt ráðgjöf og haldið námskeið fyrir þá sem glíma við erfiðleika í námi, einkum vegna lesblindu og ADHD.
Kolbeinn hefur auk þess haldið námskeið fyrir fræðslumiðstöðvar, s.s. Fræðslunet Suðurlands og Mími símenntun. Um 10 ára skeið kenndi Kolbeinn sitt eigið námskeið í Minnistækni hjá Hringsjá.
Kolbeinn Sigurjónsson hefur starfrækt Betra nám frá árinu 2004 og var virkur í innleiðingarferli Davis lesblindunámskeiðanna á Íslandi 2003. Kolbeinn er með Diplóma í lesblinduráðgjöf frá Alþjóðlegu Davis samtökunum, dáleiðslu ásamt því að vera BSc. í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Betra nám hefur verið ráðgefandi í fjölmiðlum varðandi málefni sem tengjast námi og námsörðugleikum
Fyrir hverja er Glósuskólinn?
Fjarnámskeiðið Glósuskólinn er hugsaður fyrir framhalds- og háskólanema sem vilja bæta námstækni sína. Námskeiðið hentar nemendum óháð námsgetu. Námstæknin hentar sérstaklega vel nemendum með lesblindu eða ADHD.
Lesblinda eða ADHD?
Ef þú lest hægt eða átt erfitt með að halda athygli við lestur, þá getur bætt námstækni breytt miklu fyrir þig. Margir eiga sérstaklega erfitt með að finna lykilatriði í texta, finnst erfitt að skipuleggja glósur og undirbúningur fyrir próf er kvíðavaldandi. Í Glósuskólanum lærir þú að tileinka þér sjónrænar námsaðferðir auk þess sem markmið okkar er að lágmarka lestur og þar með lestrarálag.

100% Endurgreiðsluábyrgð

Örugg greiðslugátt

100% endurgreiðsluábyrgð í 30 daga
Glósuskólanum fylgir 100% endurgreiðsluábyrgð í 30 daga frá skráningu. Ef svo ólíklega vill til að námskeiðið standi ekki undir væntingum þarftu bara að senda mér tölvupóst og ég endurgreiði námskeiðsgjaldið að fullu.
Algengar spurningar
Hvernig er kennt?
Fyrir hverja er námskeiðið?
Hentar þetta nemendum með lesblindu eða ADHD?
Er hægt að fá endurgreitt?
Hvað ef ég þarf hjálp?
Er þetta einkakennsla?
P.S.: Þetta skráningartilboð stendur aðeins í stuttan tíma. Ef þú vilt taka námið þitt föstum tökum, og létta þér lífið í leiðinni, þá er tækifærið núna.
Allur réttur áskilinn - Betra nám
888-3313