ÁTTU BARN Í 1.-6. BEKK SEM ÞARF HJÁLP Í LESTRI?

ÁRANGUR MEРEINFÖLDUM ÆFINGUM SEM TAKA MINNA EN 5 MÍNÚTUR Á DAG - OG BYLTING Í HEIMALESTRI!

30% AFSLÁTTUR Í STUTTAN TÍMA

Sonur minn er 8 ára og ég vildi prófa Lesum hraðar því hann var hægur í lestri.  Nýlega vorum við í foreldraviðtali og sonur okkar hefur bætt sig um 51 atkvæði frá síðustu mælingu! Kennarinn var alveg strórhrifinn :-)

Sérhannað þjálfunarnámskeið fyrir nemendur í 1.-6. bekk sem eiga erfitt uppdráttar í lestri, hafa lítið úthald eða lesa hægt.

BÚÐU ÞIG UNDIR BREYTINGAR

Sjálfvirka viðbragðið er lykillinn að árangri, og við umbyltum heimalestrinum í leiðinni!

Lagaðu lesturinn - án þess að lengja lestrartímann eða auka álag!

Barnið æfir sig í aðeins 5 mínútur á dag í símanum eða spjaldtölvunni. Æfingarnar eru stuttar og markvissar - engar bækur, engin löng setutörn.

Með reglulegri æfingu styrkist hraðinn og flæðið í lestrinum smám saman, án þess að lengja lestrartímann eða auka álagið á barnið.

Barnið æfir sig í aðeins 5 mínútur á dag í símanum eða spjaldtölvunni. Æfingarnar eru stuttar og markvissar - engar bækur, engin löng setutörn.

Með reglulegri æfingu styrkist hraðinn og flæðið í lestrinum smám saman, án þess að lengja lestrartímann eða auka álagið á barnið.

Með Lesum hraðar verður heimalesturinn ekki lengur kvíðvænlegur. Nemandinn sér aðeins lítinn hluta textans og getur stillt hann eftir þörfum.

Minna sjónrænt áreiti léttir lesturinn og minnkar kvíða og streitu.

Mælaborð sýnir árangur

Mælaborð á heimasvæðinu þínu sýnir árangurinn svart á hvítu.  Nytsamlegar upplýsingar um brestina á einum stað, sem hjálpa þér að taka markvisst á lestrarvandanum.

Varstu að leita að lestrarleik?  Þá er Lesum hraðar ekki fyrir ykkur.

Lesum hraðar er hvorki leikur né kennsluforrit - heldur þjálfun!

Ábyrg skjánotkun: Skjánotkun barna er þegar mikið vandamál.  Markmið okkar er markviss lestrarþjálfun sem tekur eins stuttan tíma og mögulegt er.

Leikjavæðing: Við keyrum ekki upp dópamín í heila barnsins með ýktri grafík og hljóðum sem ýta undir skapsveiflur og jafnvel skjáfíkn.

Skráning í gangi - 30% afsláttur!

Sonur minn hefur aldrei tekið eins miklum framförum milli lestrarprófa!

Foreldri um árangur barnsins síns eftir námskeiðið

Dóttir mín var að byrja í 3. bekk, og lesturinn gekk mjög hægt og áhuginn samkvæmt því. Hún var sjálf farin að finna fyrir því að hún væri á eftir hinum krökkunum.

Ég vildi að ég hefði byrjað á þessu fyrr.  Við erum búnar að vera að vera með í 3 mánuði og dóttir mín hefur tekið alveg gríðarlegum framförum.

Hún er miklu öruggari núna og í fyrsta skiptið núna fyrir stuttu kom hún heim og sagði mér frá bók sem hún er að lesa í yndislestri í skólanum, þá er hún ein að lesa í hljóði!  Mér fannst það rosa stórt skref️ Hún er orðin miklu áhugasamari um lesturinn og er farin að njóta þess að lesa

Vala Ólöf Jónasdóttir // Foreldri "Lesum hraðar" nemanda

Sonur minn er 8 ára og ég vildi prófa Lesum hraðar því hann var hægur í lestri. Nýlega vorum við í foreldraviðtali og sonur okkar hefur bætt sig um 51 atkvæði frá síðustu mælingu! Kennarinn var alveg strórhrifinn :-)

Sigurbjörg Ágústsdóttir // Foreldri

Það gengur mjög vel og ég sé miklar framfarir nú þegar. Förum ekki hratt yfir en mér finnst þetta svínvirka 😊
Það hefur líka verið mjög gott að leita til þín.

Unnur Friðriksdóttir // Móðir

Skráning Í gangi - 30% afsláttur!

Rosalega ánægð

Ég skráði okkur vegna þess að barnið mitt var lengi að lesa og fannst það leiðinlegt. Það var rosa mikil hvatning að fá að vita strax eftir hvert borð hvernig gekk.

Það hefur orðið mikil aukning á hraðanum og orðamyndun er líka betri.

Mér fannst námskeiðið vel upp sett og er rosalega ánægð😊

Íris H. Klein

Ótrúlega þakklát

Við erum svo ótrúlega þakklát fyrir þessar frábæru framfarir hjá honum og hvernig hann náði loksins að ná tökum á stöfunum eftir að hafa kennt honum með annarri aðferðarfræði. Innilega þakkir fyrir það.

Sjálfstraustið eykst að sjálfsögðu líka og um síðustu helgi fórum við til Akureyrar á íshokkímót þar sem okkar maður skoraði 13 mörk og var alveg í essinu sínu 😊

Valdís Fjölnisdóttir ... Móðir

Æfingar hafa gengið vel, hann er áhugasamur og vinnur hratt og örugglega. Mér finnst uppsetningin sniðug og hann ætti að ná að virkja minnið og þar af leiðandi leshraðann.

Á dögunum tók hann þátt í Stóru upplestrarkepninni, sem hefði í raun verið óhugsandi miðað við hvernig málin voru stödd á sínum tíma.  

Hann sigraði keppnina bæði í sínum skóla og svo í Skagafirði.  Mér finnst að þetta gefi mynd að því hvað er hægt að áorka ef maður hefur góða aðstoð!

Garðar P. Jónsson // Faðir


Ég vil byrja á því að þakka fyrir góð námskeið, Lesum hraðar og Reiknum hraðar sem sonur minn hefur verið að nota.  Ég þakka kærlega fyrir okkur bæði og mæli hiklaust með þessum námskeiðum, þau gerðu kraftaverk.

Guðrún Lára // Móðir

Við erum mjög ánægð með námskeiðið og sonur okkar sem er í 2. bekk hefur náð mjög góðum árangri.  Kristinn tók lestrarpróf í gær og það er mikil framför.  Hann var með 74 atkvæði í janúar og núna í febrúar er hann með 115 atkvæði!  Takk fyrir frábært námskeið!

María // Móðir

Skráning Í gangi - 30% afsláttur!


Um höfundinn

Kolbeinn Sigurjónsson lærði lesblinduráðgjöf hjá Davis Dyslexia Association og hefur starfrækt Betra nám frá árinu 2004.  Kolbeinn hefur sérhæft sig í úrræðum tengdum námsörðugleikum og hefur sinnt þjálfun, kennslu og ráðgjöf um árabil.

KOLBEINN SIGURJÓNSSON  //  Betra nám

Auk þess að kenna á einkanámskeiðum hefur Kolbeinn haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra fyrir ýmsa aðila, s.s. Mími símenntun, Fræðslunetið á Suðurlandi, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Hringsjá ofl.

Umsagnir foreldra um Lesum hraðar

profile-pic
Ásta Sigr. Birkisdóttir

Móðir

Ég skráði son minn á námskeiðið því hann stóð í stað. Æfingarnar hafa gengið mjög vel og sé núna mun því hann er farinn að lesa hraðar. Langar að segja að mælistikan er mjög hvetjandi, þetta verður svona keppnis fyrir þau👍

profile-pic
Jóhannes Bergþór Jónsson

Mér fannst sonur minn fastur í að stafa orðin. Það vantaði líka meiri hraða svo mér fannst sniðugt að prófa hvort hægt væri að gera þetta í tölvunni.

Það gengur alltaf betur og betur. Ég sá strax rosalegan mun og tímatakan er spennandi og hvetjandi

Við sjáum mjög mikinn mun og námskeiðið er bara algjör snilld ;)

profile-pic
Arna Margrét Ólafsdóttir Móðir

Barnið mitt er með lestrarörðugleika og málþroskaröskun. Æfingarnar hafa hentað mjög vel!

profile-pic
Unnur Friðriksdóttir

Svínvirkar!

Það gengur mjög vel og ég sé miklar framfarir nú þegar. Förum ekki hratt yfir en mér finnst þetta svínvirka 😊
Það hefur líka verið mjög gott að leita til þín.

profile-pic
Berglind Móðir

"Skilur allt miklu betur!"

Dóttur minni gekk frábærlega á námskeiðinu. Mjög góð kennsluaðferð hjá ykkur og hún skildi allt svo miklu betur! Er svo með annan dreng að fara i 10. bekk næsta vetur og hann vill fá aðgang þá, þannig við komum aftur i vetur!

profile-pic
Rúnar Þór Þórarinsson

Molar niður fyrirstöðurnar!

Dóttir mín ruglaðist á ólíklegustu stöðum í lestrinum svo við skráðum okkur á Lesum hraðar.

Sérlega ánægjulegt var að fylgjast með því hvernig æfingaforritið hvatavæðir árangur og er eldsnöggt að finna út lestrarveikleikana og ræðst á fyrirstöðurnar og hjálpar barninu - dóttur minni - að mola þær á ÁNÆGJULEGAN HÁTT með jákvæðri svörun

profile-pic
Vala Ólöf Jónasdóttir

Gríðarlegar framfarir

Dóttir mín var að byrja í 3. bekk, og lesturinn gekk mjög hægt og áhuginn samkvæmt því. Hún var sjálf farin að finna fyrir því að hún væri á eftir hinum krökkunum.

Ég vildi að ég hefði byrjað á þessu fyrr🙄 Við erum búnar að vera að vera með í 3 mánuði og dóttir mín hefur tekið alveg gríðarlegum framförum.

Hún er miklu öruggari núna og í fyrsta skiptið núna fyrir stuttu kom hún heim og sagði mér frá bók sem hún er að lesa í yndislestri í skólanum. Mér fannst það rosa stórt skref. Hún er orðin miklu áhugasamari um lesturinn og er farin að njóta þess að lesa.

profile-pic
Valdís Fjölnisdóttir

Ég má nú bara til með að senda á þig póst frá umsjónarkennaranum sem við fengum um daginn. Hann segir meira en mörg orð. Þetta er allt þér að þakka og Betra námi!

profile-pic
Ragnheiður Móðir nemanda

"Snilldar framsetning!"

Drengurinn er í 5. bekk og lesblindur ásamt því að vera með athyglisbrest. Borið hefur á erfiðleikum í vetur í náminu og því skráði ég hann á þetta námskeið.

Honum finnst þetta bara ekkert mál eftir að hafa horft á kennslumyndböndin. Takk fyrir snilldar framsetningu á námsefni!

profile-pic
Erlendur Ísfeld

Les helmingi hraðar!

8 ára sonur minn var ekki að ná tökum á lestrinum, las hægt og heimalesturinn var orðinn að óbærilegri kvöð fyrir hann og okkur foreldrana.

Þegar við byrjuðum þá las hann 70 atkvæði á mínútu þegar hann nennti því.

Strax eftir fyrsta mánuðinn varð mikil breyting. Þá komst hann upp í 90 atkvæði á mínútu og nú er hann í 140 atkvæðum.

Það sem áður var kvöl og pína var orðinn að skemmtilegri stund fyrir hann og okkur foreldrana.

Hann tekur þátt af lífi og sál þetta sameinar nú fjölskylduna í lestri.

profile-pic
Ingveldur Oddný Jónsdóttir

<#= testimonial.get('content') #>

profile-pic
Bóel Anna Þórisdóttir

Hefur tekið miklum framförum!

Sonur minn var að byrja í 3. bekk og las innan við 15 atkvæði á mín. Lesum hraðar virkað mjög vel og nýttist vel með öðrum lestri í skólanum.

Þetta var mikið áhugaverðara en venjulegur heimalestur og á tímabili vildi hann eingöngu vera í Lesum hraðar😊

Allt í sambandi við heimalestur varð jákvæðara, hann fékk að velja hvort hann vildi æfa í símanum eða í lesbók frá skóla.

Hann hefur tekið miklum framförum og les nú meiri sögur en áður. Takk fyrir okkur, kveðja Bóel!

profile-pic
Eyþór Árni Sigurólason

"Frábært námsefni!"

Sælir! Það er ekki auðvelt að viðurkenna það en ég er 35 ára gamall og er að stunda fjarnám í verkmenntaskólanum á Akureyri í meistaranámi.

Ég skráði mig til að rifja upp allt og finna það sem er að hjá mér í stærðfræðinni,

Ég hef alla tíð átt erfitt með stærðfræði og vonaði að námið ykkar muni létta mér róðurinn í gegnum stærðfræðina. Það sem ég er búinn að sjá af þessu er frábært námsefni og ég þakka ykkur fyrir að hafa búið þetta til þið eruð eflaust búnir að hjálpa mörgum krökkum í gegnum ómögulega tíma.

Það er gott að vita af þessu þegar guttinn minn byrjar í stærðfræði.

Með fyrir fram þökk!

profile-pic
Guðleif Hafdís Indriðadóttir

Les mun hraðar núna!

Barnið mitt var ekki að ná lestraviðmiðinu nógu vel og var hikandi við lestur.

Lesum hraðar æfingarnar hafa gengið mjög vel, við vinnum saman á hverjum degi en tökum okkur oftast frí um helgar.

Ég sá fljótt mun, barnið hefur bætt í sig um 20 orð á rúmum mánuði. Það les mun hraðar núna og er ekki jafn hikandi.

Barnið finnur sjálft mikinn mun og er öruggari með sig við lesturinn. Ég er mjög ánægð með námskeiðið!

profile-pic
Rafn S. Rafnsson Faðir

Gekk frábærlega!

Námskeiðið gagnaðist mínu barni alveg frábærlega við erfiðeikum í stærðfræðináminu. Takk fyrir okkur!

profile-pic
Sóley Rut Guðnadóttir

Móðir

Við sjáum flottan árangur hjá drengnum. Í september ‘24 var hann með 73 orð á mínútu. Í jan ‘25 var hann með 105 orð á mínútu. Svo 44% bætingin er vonum framar á stuttum tíma.

Flott framtak hjá þér. Mun mæla með þessu til aðra 😊

profile-pic
Ingibjörg Einarsdóttir

Náði fljótt árangri!

Við skráðum okkur til að flýta fyrir að ná tökum á lestrinum. Hún var orðin þreytt á heimalestrinum og vildi ekki lesa.

Við mikinn mun þegar við stunduðum æfingarnar og hún náði fljótt árangri í lestri. Okkur fannst þetta mjög flott hjá þér, takk fyrir við skráum okkur aftur næsta ár því hún hefur svo mikið að gera núna og lesturinn gengur vel😊

profile-pic
Eygló Ólafsdóttir

Meiri hraði og öryggi

Staðan var sú að dóttir mín las hægt. Ég vildi athuga hvort dóttir mín myndi auka leshraðann við að nota þessar æfingar sem í boði eru hjá ykkur.

Æfingarnar gengu vel og hentuðu okkur vel. Ég sé árangur hjá dóttur minni, hún fór að lesa hraðar og öðlaðist meira öryggi.

profile-pic
Finnur Þór Friðriksson Faðir

Næstum tvöföldun á hraða!

Ég er nú sjálfur með lesblindu ,fæddur 1951 og lærdómur hjá mér var alltaf erviður og tímafrekur. Eftir að hafa notað Lesum hraðar fékk sonur minn hrós í skólanum þegar hann úr 87 orðum á mínótum í 155 á þessum tíma sem eru um tvær vikur, þannig að hann varð miklu jákvæðari straks🙂 Kveðja. Finnur Þór.

profile-pic
Kristín Rut Þórðardóttir Móðir

Dóttir mín var að byrja í 2. bekk. Henni gekk illa í 1.bekk og sýndi litlar framfarir í leslestrarprófum. Það var líka erfitt að fá hana til að lesa heima.

Æfingarnar hafa gengið vel og eru mjög góðar, þær henta henni vel og ég er mjög ánægð með árangurinn!

profile-pic
Sigurður Sigurðsson

Faðir

Við ákváðum að taka þátt vegna erfiðleika við lesturinn. Æfingarnar hentuðu mjög vel og það var gaman að vinna þær, við sjáum klárlega mun, hann er farinn að þekkja tengiorðin betur og á auðveldara með að halda einbeytingu. Okkur hefur líkað námskeiðið mjög vel og við munum örugglega nýta okkur það aftur t.d. í sumar.

profile-pic
Ingibjörg Stefánsdóttir

Mikill munur á lestrinum

Við ákváðum að skrá okkur vegna þess að lestrarhraði dóttur minnar hafði staðið í stað frá janúar til maí þegar hún var í 2.bekk, þrátt fyrir að við værum að sinna heimalestrinum mjög vel.

Einnig hafði ég tekið eftir því að mér fannst hún alltaf lesa dálítið vitlaust, eins og hún kláraði ekki orðin. Mér fannst framfarirnar í sumar heldur ekki vera í takt við þann tíma sem við gáfum okkur í lesturinn.

Lesum hraðar æfingarnar hafa gengið mjög vel og dótturinni finnst gaman að fara í ipadinn og æfa sig. Æfingarnar eru einfaldar og aðgengilegar, og við sjáum mikinn mun á lestrinum.

profile-pic
Ingibjörg Haraldsdóttir

Heyri mikinn mun!

Ég ákvað að skrá son minn því hann les mjög hægt og finnst yfir höfuð ekki gaman að lesa. Æfingarnar hafa gengið mjög vel og ég heyri mikinn mun á honum. Honum finnst þessar æfingar mjög skemmtilegar👍

profile-pic
Valdís Fjölnisdóttir Móðir

Þvílíkt stökk!

Svo ótrúlega gaman að segja þér frá því að Elí var að klára sína fyrstu bók, Stjáni og stríðnispúkarnir í gær. Las hana á 3 dögum, síðustu helgi las hann svo nánast sjálfur heila sögu í Andrés!

Það er þvílíkt stökk hjá okkar manni þessa dagana að kennararnir hans sendu á okkur og skilja ekkert í þessu :) Þetta er bara dásamlegt og við við höldum áfram.

profile-pic
Merle Storm

Móðir

Staðan var þannig að syni mínum gekk illa að lesa og vildi hann ekki lesa því það var erfitt fyrir hann.

Lesum hraðar hentaði mínu barni vel (að æfa í símanum) og endutaka þar til honum fannst létt að gera æfingarnar

Það sést mikinn munur í lestri og hann er alltaf fljótari og fljótari að ná árangri í nýjum borðum.

profile-pic
Guðleif Hafdís Indriðadóttir

Les mun hraðar!

Barnið mitt var ekki að ná lestraviðmiðinu nógu vel og var hikandi við lestur.

Ég sá fljótt mun, barnið les mun hraðar núna og er ekki jafn hikandi.

profile-pic
Brynhildur Bjarnadóttir Móðir

Vel uppbyggt námskeið

7 ára sonur minn fór hægt af stað í lestri, mér fannst hann víxla stöfum og framfarirnar vera hægari en hjá eldri börnunum mínum.

Lesum hraðar æfingarnar hentuðu vel, þær urðu fjölbreyttari eftir því sem leið á námskeiðið sem var gott.

Ég sá góðan árangur, námskeiðið er vel uppbyggt og skemmtilegt.

profile-pic
Helga Hallgrímsdóttir

Snilldar námskeið!

Strákurinn minn er með lesblindu og ég vildi finna einhverja leið til að hjálpa honum.

Æfingarnar hafa gengið vel, þetta eru góðar æfingar og sé árangur eftir að hafa gert þær. Hann einbeitir sér meira við að lesa rétt iístað þess að flýta sér og lestrarhraðin er meiri.

Þetta er mjög flott æfingaforrit og minnir pínu á tölvuleiki því það eru borð eins og við kölluðum það. En takk fyrir þetta snilldar námskeið. Bestu kveðjur!

profile-pic
Eyþór Árni Sigurólason

Frábært námsefni!

Sælir! Það er ekki auðvelt að viðurkenna það en ég er 35 ára gamall og er að stunda fjarnám í verkmenntaskólanum á Akureyri í meistaranámi. Ég skráði mig til að rifja upp allt og finna það sem er að hjá mér í stærðfræðinni.

Ég hef alla tíð átt erfitt með stærðfræði og vonaði að námið ykkar muni létta mér róðurinn í gegnum stærðfræðina.

Það sem ég er búinn að sjá af þessu er frábært námsefni og ég þakka ykkur fyrir að hafa búið þetta til þið eruð eflaust búnir að hjálpa mörgum krökkum í gegnum ómögulega tíma.

Það er gott að vita af þessu þegar guttinn minn byrjar í stærðfræði.

Með fyrir fram þökk!!

profile-pic
Steinþór Helgason Faðir

Jók leshraðann!

Sonur minn átti í miklum erfiðleikum með að ná upp lestrarhraða. Lesum Hraðar þjálfunin hjálpaði þar mikið til.

Strákurinn jók lestrarhraða sinn talsvert á tímabilinu, og æfingarnar þyngdust þegar leið á og virkaði það bara fínt.

Takk fyrir okkur😊

profile-pic
Anna Guðmundsdóttir

Mjög mikill árangur!

Dóttir mín er í 2. bekk og mér fannst vanta eitthvað hjá henni í lestrinum.

Árangurinn hefur orðið mjög mikill! Stelpan mín er farin að lesa þyngri bækur í skólanum og mér finnst þetta mjög gott námskeið og ég hef verið dugleg að benda öðrum á það :)

profile-pic
Guðrún Sólveig Ríkarðsdóttir

Móðir

Strákurinn var undir viðmiðum í lestri en náði að bæta sig upp í meðaltalið núna í janúar með námskeiðinu😊 Æfingarnar hafa gengið mjög vel og allt var eins og best verður á kosið. Munum klárlega taka aftur svona námskeið og skoða stærðfræðina líka þar sem hún virðist líka áhugaverð.

profile-pic
Erlendur Ísfeld

Tvöfaldaði lestrarhraðann!

8 ára sonur minn var ekki að ná tökum á lestrinum, las hægt og heimalesturinn var orðinn að óbærilegri kvöð fyrir hann og okkur foreldrana.

Lesum hraðar hentaði honum mjög vel og heimalesturinn varð strax miklu jákvæðara verkefni fyrir hann.

Þegar við byrjuðum þá las hann 70 orð á mínútu, en í lokin var hann kominn upp í 140 orð! Í dag erum við með keppni í lestri sem er þannig að sá aðili á heimilinu sem les flestar mínútur er krýndur lestrarhestur vikunnar á sunnudagskvöldum.

Hann tekur núna þátt af lífi og sál og það sem áður var kvöl og pína sameinar nú fjölskylduna í lestri.

profile-pic
Vala Ólöf Jónasdóttir

Gríðarlegar framfarir!

Dóttir mín var að byrja í 3. bekk, og lesturinn gekk mjög hægt og áhuginn samkvæmt því. Hún var sjálf farin að finna fyrir því að hún væri á eftir hinum krökkunum.

Æfingarnar hafa hentað mínu barni mjög vel. Ég vildi að ég hefði byrjað á þessu fyrr🙄

Við erum búnar að vera að vera með í 3 mánuði og dóttir mín hefur tekið alveg gríðarlegum framförum. Hún kunni alla stafina áður en hún byrjaði í 1. bekk en samt fór lesturinn mjög hægt af stað og hún ruglaðist mikið á stöfum.

Stafaruglingur hefur minnkað mjög mikið og hún er miklu öruggari. Hún er orðin miklu áhugasamari um lesturinn og er farin að njóta þess að lesa.

profile-pic
Anna Guðmundsdóttir

Mjög mikill árangur!

Dóttir mín er í 2. bekk og ég vildi prufa Lesum hraðar námskeiðið því mér fannst vanta eitthvað hjá henni.

Eftir að við byrjuðum sá ég strax að hún var að rugla stöfum, eins og til dæmis b og d. Æfingarnar gengu vel og árangurinn hefur orðið mjög mikill! Stelpan mín er farin að lesa þyngri bækur í skólanum. Mér finnst þetta mjög gott námskeið og ég hef verið dugleg að benda öðrum á það 👍

profile-pic
Sigurður Sigurðsson

Sannfærð um árangur

Strákurinn minn er frekar hæglæs og á það til að ruglast á stöfum. Æfingarnar hafa gengið vel, strákurinn er áhugasamur og yfirleitt til í þær. Við erum sannfærð um að þetta muni gagnast honum!

profile-pic
Lára Bryndís Pálmarsdóttir

Sonur minn er bara 6 ára en hann a erfitt með að muna stafina og eg er bara svakalega ánægð með þetta!

profile-pic
Valdís Fjölnisdóttir

Frábærar framfarir!

Við erum svo ótrúlega þakklát fyrir þessar frábæru framfarir hjá honum og hverni hann náði loksins að ná tökum á stöfunum eftir að hafa kennt honum með annarri aðferðarfræði. Innilega þakkir fyrir það🙏

profile-pic
Auður Hanna Ragnarsdóttir

Barnið mitt ruglaðist á stöfum og var þreytt og óánægt við lesturinn. Ég ákvað því að prófa Lesum Hraðar námskeiðið og barnið var miklu ánægðara.

Æfingarnar ganga mjög vel, barninu finnst gaman að vinna verkefnin og við tölum um það sem vel var unnið.

Æfingarnar henta mjög vel, það er dagamunur á barninu, og því gengur betur með lesturinn.

profile-pic
Helga María

Eldri dóttir mín var að byrja í fyrsta bekk og mig langar að geta kennt henni að lesa á sem bestan hátt. Henni finnast æfingarnar skemmtilegar og yngri systir hennar sem er 4 ára vill ólm fá að vera með líka og eru þær báðar búnar að læra helling 😊

Núna þekkja þær stafina fyrr en áður og hika líka minna.

profile-pic
Valda Móðir

Sé breytingu strax!

Ég skráði son minn í 2. bekk sem hefur lesið frá 4 ára aldri en ekki breyst mikið síðan þá.

Hann las ekki nógu hratt og ég vildi hjálpa honum að lesa hraðar.

Allt virkar vel og ég sé breytingu strax. Hann les mikið hraðar og hann er núna mjög ánægður og núna vill hann lesa bækur 😊

profile-pic
Ásgerður Hildur Ingibergsdóttir Móðir

Skilaði miklum árangri

Í byrjun námskeiðs átti dóttir mín í erfiðleikum með að tengja vel stafina. Æfingarnar hentuðu frábærlega og skiluðu miklum árangri. Ég er mjög þakklát fyrir þetta námskeið. Dóttir mín var mjög dugleg að gera æfingarnar daglega í ca 4 mánuði og ég sé mikinn árangur. Ég er mjög sátt með námeiðið. Takk fyrir :) Við eigum pottþétt eftir að skoða fleiri námskeið hjá þér Kolbeinn.

profile-pic
Ásgerður Hildur Ingibergsdóttir

Móðir

Ég ákvað að skrá dóttur mína vegna þess að hún hefur átt erfitt með að ná að tengja saman stafina og átt erfitt með úthald og einbeitingu. Hún er soldið óþolinmóð og það er stundum erfitt að fá hana til að endurtaka 5 sinnum. Ég sé mun eftir að hún fór að gera æfingarnar og ég er spennt að sjá framhaldið.

profile-pic
Rúnar Þór Þórarinsson

Lestrarörðugleikarnir úr sögunni!

Dóttir mín átti í erfiðleikum með að byggja upp hraðann en eftir Lesum hraðar æfingarnar eru lestrarörðugleikarnir eru eiginlega alveg úr sögunni.

Forritið leysti úr erfiðleikunum á snilldarlegan hátt og með því að leyfa barninu að finna fyrir HRAÐRI FRAMFÖR (börn eru óþolinmóð) þá hélst áhuginn.

profile-pic
Eyþór Árni Sigurólason

Frábært námsefni!

Það sem ég er búinn að sjá af þessu er frábært námsefni og ég þakka ykkur fyrir að hafa búið þetta til þið eruð eflaust búnir að hjálpa mörgum krökkum í gegnum ómögulega tíma.

profile-pic
Irma Toftum Móðir

Sé mikinn mun!

Staðan var þannig hjá mínum dreng að hann er hægur að lesa , einnig hefur hann ekki náð "au" og "ei".

Æfingarnar hafa gengið vel og ég sé mikinn mun.

profile-pic
Karen Rúnarsdóttir Móðir

Man betur stafina

Heimalestur hefur gengið illa og framfarir hægar. Það myndast leiðinleg stemming á heimilinu þegar lesa á heima og mér finnst námserfiðleikarnir farnir að hafa neikvæð áhrif á sjálfsmynd stelpunnar minnar og viðhorf hennar til skóla og náms.

Æfingarnar hafa gengið vel. Það er mun auðveldara að fá hana til að nota æfingaforritið en að lesa í lestrarbókinni. Við höfum því fækkað þeim mínútum sem hún þarf að lesa í bókinni og notum appið á móti því.

Árangurinn er sá að hún er farin að muna betur muninn á stöfum sem hún ruglaði saman áður s.s. u og ú, f og v, þ og ð ofl.

profile-pic
Elsý V.

Sjáum mikinn árangur

Stelpunni minni gekk ekki nógu vel í lestri í 1. bekk, við notuðum námskeiðið til að viðhalda lestrinum yfir sumarið. Ég mæli hiklaust með þessu, því það var mjög gott að nota þetta. Ég sé mikinn árangur og dóttir mín fann það líka sjálf.

profile-pic
Guðrún Ríkarðsdóttir

Þurftum hjálp

Við skráðum okkur til að hjálpa syni okkar að ná upp lestarhraða. Þetta hefur gengið mjög vel, ég sé mun á honum og hann hafði áhuga á þessu. Hann bað frekar um að fá að gera æfingarnar þarna heldur en að lesa í bók!

profile-pic
Sigríður Móðir

"Hækkaði úr 2 í 7!"

Með ykkar hjálp tosuðum við dóttur okkur úr 2 í 7 í stærðfræði í vor, svo hún flaug inn í skólann sem hana langaði í. Takk fyrir okkur!

profile-pic
Erna Kristin Ernudóttir

Fluglæs á einum vetri!

Ég á einn 6 ára sem hefur verið í talþjálfun í 3 ár og tal hefur gengið brösuglega. Þegar hann byrjaði í skóla þá var hann ólæs og ég hafði áhyggjur af því að þetta myndi ekki ganga vel.

Æfingarnar hafa gengið mjög vel, hann var áhugasamur og endurtekningin hentaði honum mjög vel. Við sjáum mikinn árangur, ég get nánast sagt að hann hafi orðið fluglæs á þessum eina vetri!

profile-pic
María Kristinsdóttir

Mig langar til að láta þig vita að við erum mjög ánægð með námskeiðið og sonur okkar sem er í 2. bekk hefur náð góðum árangri með æfingunum og er mjög jákvæður gagnvart því að gera æfingarnar.

Ég fekk þessi skilaboð frá kennaranum hans fyrir páska:
"Kristinn tók lestrarpróf í gær. Það er mikil framför, hann fór úr 25 orðum í maí í fyrra í 115 orð nú í byrjun apríl!!!!!

Lesum hraðar forritið hefur haft jákvæð áhrif fyrir son minn og hann sýndi líka mikinn metnað í að fara aftur í gegnum borð til að sjá árangurssúlurnar lækka meira.

Takk fyrir frábært námskeið!

profile-pic
Kristín Sveinsdóttir Móðir

Er að rúlla þessu upp!

Dóttir mín er á mörkunum að vera með lesblindu svo mig langaði bara til að skerpa aðeins á henni með því að kaupa þetta námskeið.

Hún er að rúlla því upp og finnst þetta skemmtilegt svo það er bara vinningur hjá okkur 😊 Henni finnst þetta gaman og það er góður hraðamunur hjá henni.

profile-pic
Þórunn Ásta Móðir

Les miklu hraðar

Dóttir mín las hægt og stafaði sig í gegnum mörg orð. Fannst hún vera að dragast aftur úr í bekknum og henni leiddist heimalesturinn.

Dóttir mín les miklu hraðar eftir 2ja mánaða æfingar. Núna les hún miklu hraðar, hefur mikinn metnað í heimalestri og það sem okkur finnst lang mikilvægast er að hún er farin að lesa bækur sér til skemmtunar.

profile-pic
Guðlaug Ósk Sigurðardóttir

Æfingarnar eru frábærar

Ég skráði barnið mitt vegna þess að lesturinn gekk illa að lesa og það var líka stafaruglingur í gangi.

Lesum hraðar æfingarnar eru frábærar og barninu finnst gaman að gera þær, og það er heilmikill árangur!

profile-pic
Finnur Þór Friðriksson

Faðir

Ég er nú sjálfur með lesblindu ,fæddur 1951 og lærdómur hjá mér var alltaf erviður og tímafrekur. Svo varð ég var við að nafni minn las svolítið ójafnt, en stundum svolítið tafs. Svo ég sá að Þetta væri gott fyrir hann og mig líka. Hann fékk hrós í skólanum um daginn fór úr 87 orðum á mínótum í 155 á þessum tíma sem eru um tvær vikur, þannig að hann varð miklu jákvæðari straks🙂 Kveðja. Finnur Þór.

profile-pic
Guðbjörg Hulda

Mæli hiklaust með þessu!

Staðan hjá okkur var að sonur minn hljóðaði mikið og var alls ekki alveg klár á öllum bókstöfum og hefur átt mjög erfitt með lestur.

Þetta er snilld til að gera lestur áhugaverðan og skemmtilegan. Ég mæli hiklaust með þessu og það var gott utanum hald í gegnum tölvupóst líka og alltaf hægt að spurja ráða og þá var svarað um hæl.

Mæli klárlega með þessu fyrir öll börn í 1-4 bekk óháð lestarvanda.

profile-pic
Þóra Björk Elvarsdóttir

Klárlega árangur

Ég keypti reiknum hraðar fyrir 10 ára dóttur mína og fannst svo sniðugt hve stuttan tíma það tók að æfa sig.
Ég ákvað að prófa lesum hraðar fyrir son minn sem er 7 ára. Það tekur stuttan tíma að fara í gegnum verkefni dagsins og árangurinn er vel sjáanlegur. Þetta gefur þeim sjálfstraustið og úthaldi sem þarf👍

Æfingarnar eru stuttar og hnitmiðaðar sem henta okkur fullkomlega því það er svo auðvelt að halda einbeitingunni. Það er klárlega er árangur sem við tökum bæði eftir🙏

profile-pic
Bessý Hólmgeirsdóttir

Strax munur eftir stuttan tíma

Sonur minn er með ADHD og hefur lestur gengið brösuglega hjá honum.

Það var mikið hik, og hann las orðin staf fyrir staf. Hann átti það líka til að ruglast á nokkrum stöfum.

Æfingarnar hafa gengið ótrúlega vel. Æfingarnar eru stuttar og mjög hnitmiðaðar, og appið er æðislegt

Ég sá strax mun hjá honum eftir mjög stuttan tíma. Ótrúlega gaman að vinna þetta með honum og honum finnst þetta líka skemmtilegt :)

profile-pic
Garðar Páll Jónsson

Farinn að lesa sjálfur!

Strákurinn minn var treglæs og hafði lítinn áhuga á að lesa sjálfur. Hann þurfti að fá æfingar sem gætu styrkt hann og aukið lestraráhuga.

Æfingarnar hentuðu vel og fyrirkomulagið varð til þess að hann hafði áhuga á því að gera betur og halda áfram

Það er mikill munur á strák, hann er farinn að lesa sjálfur og hraðinn er að aukast.

profile-pic
Guðrún S. Knútsdóttir

Sé mikinn mun!

Barnið mitt las hægt komið í 2. bekk í grunnskóla. Hafði engan áhuga á bókum og alltaf barátta að fá hann til að lesa heima.

Lesum hraðar æfingarnar hentuðu mjög vel. Honum fannst hann vera að spila tölvuleik í símanum og var alltaf ákafur að reyna að vinna hvert borð með þvi að ná háu skori.

Ég sé mikinn mun, hann les hraðar, fór í lestrarmat núna fyrri stuttu eftir að við vorum búin að nota Lesum hraðar í 2 mánuði og hann var kominn nálægt meðaltali😊 Hann les líka núna heima án vandræða!

profile-pic
Helena Þórólfsdóttir Móðir

Miklu öruggari!

Ég finn mikinn min á leshraðanum. Sonur minn hikstar ekki eins á orðunum og er miklu öruggari. Ég get mælt með þessu 😊

profile-pic
Brynja Pétursdóttir

Barnið mitt er tvítyngt og á erfitt með lestur og talar ekki rétt.

Æfingar hafa gengið mjög vel og ekki skemmir að þetta er í símanum svo þetta er alltaf við höndina. Eldra barnið og það yngra sem er fimm ára eru líka að prófa og oft eru þau að gera þetta saman í bílnum eða jafnvel úti í bæ.

Við sjáum framfarir sjást strax þetta er snilldar námskeið!

profile-pic
Svanhildur Bjargardottir

Meiri lestraránægja!

Strákurinn minn átti í erfiðleikum með lestur. Æfingarnar henta honum vel, þær eru stuttar og hnitmiðaðar. Ég sé mikinn mun og það er líka meiri ánægja hjá honum að lesa. Við erum mjög sátt við þetta allt😊

profile-pic
Guðmunda Elíasdóttir

Móðir

Strákurinn minn, 8 ára, er orðinn vel læs, en mér fannst vanta upp á að auka hraðann og skýrari lestur. Þess vegna ákváðum við að taka námskeiðið og sjá hvort honum færi fram.

Æfingarnar hafa gengið mjög vel. Honum hefur fundist mjög spennandi að breyta til í heimalestrinum og ekki skemmir fyrir að fá að lesa í farsímanum!

Við höfum merkt góðar framfarir og við höfum líka fengið endurgjöf frá skólanum þar sem við vorum spurð hvað við værum að gera, kennarinn hefur tekið eftir framförum🙂

profile-pic
María Kristinsdóttir

Tvöföldun á hraða

Mig langar til að láta þig vita að við erum mjög ánægð með námskeiðið og sonur okkar sem er í 2. bekk hefur náð góðum árangri með æfingunum.

Ég fekk þessi skilaboð frá kennaranum hans fyrir páska:

Kristinn tók lestrarpróf í gær. Það er mikil framför: 74 atkvæði í janúar og nú í byrjun apríl 115 atkvæði!!!!!

Takk fyrir frábært námskeið!

profile-pic
Karen Rúnarsdóttir

Fékk sjálfstraust!

Dóttir mín átti erfitt með að komast af stað í lestrinu og missti sjálfstraustið fljótt. Við þurftum því að finna nýja leið til þess að koma henni af stað.

Æfingarnar hafa gengið vel og valdi hún yfirleitt frekar að nota æfingaforritið en að lesa í lestrarbókinni. Henni fannst það skemmtilegra og sjálfstraustið óx þegar hún náði að klára borðin.

Með því að nota æfingaforritið nær eingöngu í ákveðinn tíma fékk dóttir mín sjálfstraustið tel þess að halda áfram og reyna við flóknari texta.

profile-pic
Kristín Sigurjónsdóttir

<#= testimonial.get('content') #>

profile-pic
Valgerður Bachman Móðir

Rosalegur munur!

Ég sá rosalega mun hjá stráknum mínum í vor og því byrjuðum við aftur.

Þetta hefur líka hjálpað mér að sjá hvað má betur fara, þar sem ég skrái niður það sem hann á erfitt með að bera fram.

Ég get látið skólann vita og eru því heimili og skólinn að vinna þannig saman í lestrinum út frá Lesum hraðar æfingunum.

profile-pic
Birna Hannesdóttir Móðir

Sé strax mun!

Strákurinn minn er í 1. bekk og ég ákvað að skrá hann á námskeiðið hér til að hjálpa honum að ná fyrr tökum á lestrinum.

Það er mikill kostur að æfingarnar taka stutta stund og ég sé strax mun eftir 2 vikur! Hann er öruggari og farinn að lesa meira og hraðar.

profile-pic
Rúnar Þór Þórarinsson

ÁRANGUR ÓUMFLÝJANLEGUR!

Dóttir mín átti í erfiðleikum með að byggja upp hraðann í lestrinum, ruglaðist á ólíklegustu stöðum þannig að erfitt var að átta sig á hvað var að því á sömu stundu var stafsetningargeta hennar ágæt, þannig að ólíklegt var að um dæmigerða lesblindu væri að ræða. Ég kynnti mér Lesum Hraðar hjá Betra nám og leist mjög vel á áherslurnar og uppsetninguna, og keypti áskrift.

Við fórum samviskusamlega eftir öllum leiðbeiningum og til að segja stutta sögu enn styttri þá er þetta svona: Ef leiðbeiningunum er fylgt er ÁRANGUR ÓUMFLÝJANLEGUR.

Sérlega ánægjulegt var að fylgjast með því hvernig forritið hvatavæðir árangur og er eldsnöggt að finna út lestrarveikleikana og ræðst á fyrirstöðurnar og hjálpar barninu - dóttur minni - að mola þær á ÁNÆGJULEGAN HÁTT með jákvæðri svörun.

Mikilvægt er að vera með barninu, ekki láta það vera einsamalt í þessu, það er gaman fyrir barnið, því börn gangast upp í því að verða betri og fara hratt fram fyrir framan augun á mömmu sinni eða pabba. Þau VILJA vera dugleg og uppskera hrifningu og það er það sem gerist.

Lestrarörðugleikarnir eru eiginlega alveg úr sögunni. Þegar dóttir mín var orðin þokkaleg var hún farin að vilja lesa bækur frekar en að gera síðustu æfingarnar í forritinu, sem er líka FRÁBÆRT því auðvitað vill maður ekki að síminn/snjalltölvan verði forsenda þess að barnið manns vilji lesa. Það kom í ljós að litlu orðin, og ekki bara ákveðnir stafir heldur ýmis stafasambönd voru vandamálið. Vel þekktir stafir og hljóð, voru að vefjast fyrir henni í ákveðnum samhengjum og ekki öðrum. Forritið leysti úr því á snilldarlegan hátt og með því að leyfa barninu að finna fyrir HRAÐRI FRAMFÖR (börn eru óþolinmóð) þá hélst áhuginn.

Leggja mætti áherslu á það við foreldrana að vera lengi í einu í hvert sinn sem æfingarnar eru gerðar. Reyna að ná skriði og hætta meðan er gaman.

profile-pic
Símon Hjaltalín Faðir

Meiri hraði og lesskilningur

Æfingarnar hífðu upp leshraða og lestrarskilning! Námskeiðið hentaði vel yngri stráknum sem las orðið ansi hratt án hiks 🙂

profile-pic
Bóel Anna Þórisdóttir

Mikið áhugaverðara!

Sonur minn er í þriðja bekk og las innan við 15 atkvæði á mínútu.

Þetta var mikið áhugaverðara en venjulegur heimalestur og allt í sambandi við heimalestur varð jákvæðara.

Hann hefur tekið miklum framförum og les nú meiri sögur en áður.

profile-pic
Halldóra Malin Pétursdóttir

Barnið mitt er seint til lesturs, ég var búin að fresta þessu í tvö ár þegar ég ákvað loksins að slá til. Æfingarnar eru mjög ítarlegar og góðar. Stundum finnst mér æfingarnar vera auðveldar en það er líka gott að sjá að barninu gengur vel.

Nú er hann hættur að giska á orðin og ég er mjög sátt.

profile-pic
Valdís Fjölnisdóttir

Líkti þessu við kraftaverk!

Sonur okkar er nú í 3. bekk og gat ekki lesið "Sísí og Lóló". Síðasta haust tókum við hann úr lestrarkennslunni og fylgdum þessari kennsluaðferð og hann er nú farinn á lesa eftir eina önn. Við fengum nú tölvupóst frá kennaranum. Hún var svo hissa yfir framförunum að hún fór að gráta og líkti þessu við kraftaverk!

profile-pic
Valdís Fjölnisdóttir Móðir

Ótrúlega þakklát

Við erum svo ótrúlega þakklát fyrir þessar frábæru framfarir hjá honum og hvernig hann náði loksins að ná tökum á stöfunum eftir að hafa kennt honum með annarri aðferðarfræði. Innilega þakkir fyrir það.

Sjálfstraustið eykst að sjálfsögðu líka og um síðustu helgi fórum við til Akureyrar á íshokkímót þar sem okkar maður skoraði 13 mörk og var alveg í essinu sínu 😊

profile-pic
Lárus Freyr

Gengur frábærlega!

Það hefur gengið frábærlega vel. Hann er alltaf tilbuinn til að gera æfingarnar og keppist við að ná öllu niður í rautt. Við finnum nú þegar mun á honum í almennum lestri.

profile-pic
Jóhannes Bergþór Jónsson

Algjör snilld!

Lesum hraðar þjálfunin er algjör snilld!

profile-pic
Íris H. Klein

Rosalega ánægð

Ég skráði okkur vegna þess að barnið mitt var lengi að lesa og fannst það leiðinlegt. Það var rosa mikil hvatning að fá að vita strax eftir hvert borð hvernig gekk.

Það hefur orðið mikil aukning á hraðanum og orðamyndun er líka betri.

Mér fannst námskeiðið vel upp sett og er rosalega ánægð😊

profile-pic
Halla Hjartaróttir

Móðir

Ég á 3ja ára strák sem kann að lesa en hefur oft takmarkað úthald og það er lítið til af efni fyrir þann aldur. Þetta efni er því frábær viðbót og honum finnst spennandi að lesa líka í ipad. Æfingarnar eru stuttar og hnitmiðaðar og henta því vel auk þess sem honum finnst ótrúlega gaman að fá strax endurgjöfina. Ég sé framfarir já, eftir þvi sem hann endurtekur æfingarnar oftar þá eykst hraðinn og mér finnst ég líka finna það í öðrum lestri.

profile-pic
María Einarsdóttir

Meiri leshraði!

<#= testimonial.get('content') #>

profile-pic
Sólrún Inga Traustadóttir

Meiri áhugi, hraði og árangur!

Við vildum meiri fjölbreytileika í heimalestrinum og einnig reyna að auka áhuga og hraða barnsins.

Æfingarnar hentuðu afar vel og áhugi jókst og einnig lestrarhraði.

Árangur varð líka betri - og hefði verið enn betri ef við hefðum náð að æfa okkur á hverjum degi.

Fjölbreyttar og góðar æfingar. Sérstaklega gaman að bæta við fleiri sögum þegar líður á notkunina. Takk kærlega fyrir okkur!

profile-pic
Umsjónarkennari

Fáránlega lóðrétt!

Sælar, nú eru heldur betur framfarir hjá okkar manni 😊

Hann las 95 orð í lesfimi og vantaði lítið upp á að hann náði V2, línan hans er fáranlega lóðrétt.

Lesskilningur fylgir hratt með og hann svaraði 17 af 20 spurning rétt. Textinn er erfiður og alls ekki auðlesinn.

Við erum svo ánægðar með árangurinn , til hamingju með flotta strákinn ykkar sem gefst svo sannarlega ekki upp!

Kveðja [Umsjónarkennari]

profile-pic
Herdís Leifsdóttir

Sá strax framför

Sonur minn er eftir á í lestri og ruglar saman orðum og er einnig með dæmigerða einhverfu

Lesæfingarnar hentuðu honum mjög vel og ég sá strax framför hjá honum. Þetta er mjög flott námskeið, svo takk kærlega fyrir okkur!

profile-pic
Lilja Sigurðardóttir

Móðir

Æfingarnar gengu mjög vel og það voru fljótt framfarir hjá henni. Sérstaklega þegar hún var búin að læra flesta stafina, þá var hún fljót að læra orðin. Hraðinn hefur aukist mikið á 6 mánuðum. Það eru líka færri hik hjá henni svo ég er mjög sátt með námskeiðið.

profile-pic
Erna M. Jóhannsdóttir Móðir nemanda

"Einstaklega skýrt!"

Upptökurnar, útskýringarnar og dæmin sem sett eru upp á námskeiðinu eru einstaklega skýr og mjög vel farið í gegnum öll atriði.

profile-pic
Soffía Ámundadóttir Kennari

Mæli með fyrir öll börn!

Dóttir mín hefur sýnt hægar framfarir í lestri frá upphafi skólagöngu. Hún hefur verið áhugalaus og látið sig hafa heimalestur en finnur ekki innri áhugahvöt. Við ákváðum því að prófa Lesum hraðar. Hún sér sjálf árangur og gefur sig í æfingar á hverjum degi. Ég sé sjálfstraustið aukast og hún hefur gaman af þessum æfingum. Ég mæli með betra námi fyrir öll börn 👍

profile-pic
Inga Sigrún

Minni leiði að lesa

Ég vildi styðja barnið mitt í lestrinum og gera heimalesturinn skemmtilegri.

Lesum hraðar æfingarnar hentuðu mjög vel og hann var áhugasamur.

Það náðist mjög góður árangur , og leiði minnkaði líka 😊

profile-pic
Birna Baldursdóttir

Finn mikinn mun!

Langar að byrja á að hæla þér og þakka fyrir þetta frábæra námsefni!

Við erum dugleg að æfa okkur á stöfunum og ég finn mikinn mun á þessum stutta tíma.

Og best af öllu er að finna vaxandi sjálfstraust hjá stráknum mínum við lesturinn. Takk!

profile-pic
Hafdís Helgadóttir

Langbesti stærðfræði kennari sem ég hef haft.

profile-pic
Sólrún móðir

Sé strax breytingar

Á stuttum tíma sé ég strax breytingar. Sonur minn hefur líka gaman að þessu og ég er mjög ánægð!

profile-pic
Elísabet Sveinsdóttir

Móðir

Ég skráði son minn því hann þurfti hvatningu í lestri.

Lesm hraðar æfingarnar henta honum vel og eru skemmtilegar.

Öryggið er núna meira hjá honum. Þetta er frábært efni.

profile-pic
Guðrún Lára Móðir

Námskeiðið gerði kraftaverk

Ég vil byrja á því að þakka fyrir gott námskeið sem sonur minn sem nú er í 7. bekk hefur verið að nota.

Ég þakka kærlega fyrir okkur bæði, námskeiðið gerði kraftaverk og ég mæli hiklaust með þessu námskeiði.

profile-pic
Anna og Lilja

Lýsir upp þekkinguna!

Það sem er svo frábært er að sjá hvernig þetta "kveikir" eða lýsir upp þekkinguna. Þá er þetta bara frábært verkfæri fyrir okkur kennarana.

profile-pic
María Einarsdóttir

Sonur minn var lengi að lesa og mörg þessi litlu orð voru ekki komin inn hjá honum.

Æfingarnar hentuðu mínu barni því einkar vel. Honum fannst þægilegt að fá eitt orð í einu til að einbeita sér að, og sjá svo árangurinn strax á tímaskífunni.

Árangurinn var mjög góður. Hann bætti lestrarhraðann sinn en þó fannst mér hvað best að sjá árangurinn í öllum þessum litlu orðum. Hann er núna mun öruggari með þau og staldrar sjaldnar við þau en áður.

profile-pic
Valda

Vill núna lesa bækur!

Ég skráði son minn vegna þess að lesturinn var ekki mikið að breytast. Hann las ekki nógu hratt. Hann er núna í 2. bekk og mig langar að hjálpa honum að geta lesið hraðar.

Æfingarnar hafa gengið vel og stundum æfir hann mikið og stundum minna, en allt virkar þetta vel.

Ég sé breytingu strax, hann les núna miklu hraðar og hann er sjálfur mjög glaður. Hann vill núna lesa bækur😊

profile-pic
Berglind Bergvinsdóttir

Kennari

Er með fjögur börn í Naustaskóla í tilraun hjá þér á vegum Aðalheiðar Skúladóttur. Námskeiðið gengur vel og ég næ að láta þau æfa sig fjóra daga í viku. Æfingarnar henta fínt hjá þessum krökkum sem ég er að prófa þetta á í 2. bekk í Naustaskóla.
Viðbragðið hjá þeim er betra eftir nokkrar umferðir.

profile-pic
Olga Móðir

"Biður sjaldan um hjálp"

Hæ hæ! Það gengur vel hjá dömunni og hún er að vinna þetta á góðum hraða.

Mér finnst þetta henta henni mjög vel. Hún biður mig sjaldan um hjálp lengur, vinnur þetta bara sjálf og fer yfir.

Í skólanum vantar ýmislegt inn í hjá henni því hún hefur oftast dregist aftur úr. Hún hefur fengið sérkennslu þar sem þau geta unnið hægar en í bekk.

Við erum mjög ánægðar með námskeiðið!

profile-pic
Ólöf Lára Ágústsdóttir Móðir

Ég sé mikinn mun

Ég ákvað að skrá barn mitt á námskeiðið því hann hefur átt erfitt uppdráttar í lestri. Hann las hægt, þreyttist auðveldlega og ruglaði saman stöfum. Hann var farinn að dragast afturúr og ég vil gera allt svo hann haldi í sína jafnaldra.

Æfingarnar hafa gengið vel og sonur minn er alltaf spenntur að byrja, honum finnst þetta mjög gaman. Ég sé mikinn mun og það sem skiptir mestu máli er að hann sér sjáanlegan mun við hverja umferð.

Nú höfum við ekki verið lengi á námskeiðinu en ég sé strax mun á heimalestrinum. Það er kominn aukinn hraði hjá honum ásamt auknu sjálfstrausti, sem skiptir gríðarlegu máli. Við erum mjög sátt 😊

profile-pic
Sóley Halla Möller

Við skráðum okkur vegna þess að það gekk ekki vel að læra að lesa. Það hefur gengið vel og við sjáum mikinn mun.

Skráning Í gangi - 30% afsláttur!

Hvernig virkar Lesum hraðar?

Lesum hraðar æfingarnar bæta sjálfvirka viðbragðið sem lesturinn byggir á.

STAFAÞJÁLFUN

Við skimum fyrir og lögum stafarugling.  Stafaruglingur getur hamlað framförum verulega.

NEFNUHRAÐI OG VIÐBRAGÐ

Sérstakur orðabanki fylgir æfingunum og orð með háa birtingartíðni í texta eru æfð sérstaklega til að auka sjónrænan orðaforða barnsins.

LESFIMI

Nemandinn getur valið brot úr vinsælum barnabókum til að þjálfa lestur samfellds texta.  Hraðinn er birtur í rauntíma og árangurinn sést svart á hvítu þegar textinn er lesinn aftur.

FLÆÐI OG HRAÐI

Við æfum líka augnhreyfingar og flæði þar sem lesandinn les kafla úr vinsælum bókum á stighækkandi hraða.

BYLTING Í HEIMALESTRI

Þéttur texti reynist mörgum yfirþyrmandi.  Í Lesum hraðar getur nemandinn valið bók út frá áhuga og getu, og aðlagað textann að sínum þörfum.

ENDURGJÖF EYKUR ÁRANGUR

Rannsóknir sýna að endurgjöf skiptir gríðarlegu máli.  Hver æfingaumferð er stutt og í lok hennar birtist mælir sem sýnir hraða og viðbragð svart á hvítu.  Þetta auðveldar bæði foreldri og barni að sjá hversu oft þarf að æfa hvert borð áður en haldið er áfram.

Lesturinn gekk alls ekki nógu vel og var strákurinn okkar hæglæs og ruglaðist auðveldlega í lestrinum. Lesturinn var erfiður og þar af leiðandi leiðinlegur og hann hafði lítið úthald og pirraðist auðveldlega. Lesum hraðar hjálpaði honum mjög mikið að ná upp meiri hraða, sjálfvirkni og öryggi í lestrinum.

Við byrjuðum að nota Lesum hraðar um haustið í 3. bekk og sáum miklar framarir og hann fann það sjálfur. Æfingarnar hentuðu okkar strák mjög vel. Það var gaman fyrir hann að sleppa lestrarbókinni og fannst skemmtilegt að lesa af spjaldtölvunni. Honum fannst þetta alltaf gaman og hvetjandi að sjá tímann og árangurinn sjónrænt í forritinu.

Þetta skilað góðum árangri og við fundum hraðann og öryggið aukast. Hann bætti sig ótrúlega mikið og fékk svo verðlaun við skólaslit fyrir mestar framfarir í lestri í bekknum sínum.

Hann var ótrúlega stoltur af þeim árangri og það hvatti hann áfram. Við sáum mikinn árangur en hann á samt enn í erfiðleikum og les ekki alltaf rétt, enda lesblindur en Lesum hraðar hjálpaði okkur ótrúlega mikið.

Hann var hæglæs og að ströggla mikið í lestrinum en getur nú lesið sér til ánægju og hraðinn er orðinn ásættanlegur.

Foreldri drengs í 3ja bekk

Vinsælir höfundar leggja okkur lið

Lesæfingar ganga betur ef þær eru skemmtilegar!  
Lesum hraðar inniheldur efni frá vinsælum höfundum sem krydda æfingarnar.

Ævar Þór Benediktsson

Birgitta Haukdal

David Walliams

Ingibjörg Valsdóttir

Strákurinn minn hafði aldrei tekið eins miklum framförum milli lestrarprófa. Hann var miklu viljugri til þess að lesa smá í símanum hjá mér heldur en að taka upp bók. Árangurinn var áþreifanlegur eftir Lesum hraðar námskeiðið!

Sigrún Bjarnadóttir Móðir

KAUPAUKAR

betra nám klúbburinn fylgir með!

Allur pakkinn fylgir nú með!

Með skráningu færðu núna aðild að Betra nám klúbbnum, sem veitir þér aðgang að ÖLLUM námskeiðum Betra náms.

  • Aðgangur að öllum námskeiðum 
  • Ótakmarkaður stuðningur 
  • Aðild að klúbbnum 
  • Rafbækur að virði kr. 13.300.-

Kaupaukar

43.100

Um höfundinn

Hi,

Kolbeinn Sigurjónsson

Ég heiti Kolbeinn og hef starfrækt Betra nám lestrar- og lesblinduráðgjöf síðan 2004.  Ég hef haldið fjölda námskeiða og verið ráðgefandi í fjölmiðlum varðandi umræðu um lestur og námsörðugleika.

30 DAGA ENDURGREIÐSLUÁBYRGÐ

100% endurgreiðsluábyrgð í 30 daga frá skráningu

Engin áhætta!  Ég er svo sannfærður um að námstæknin hjálpi þér að minnka lestrarálagið og bæta árangurinn að ég axla ábyrgðina fyrir þig.  Ef þú telur námstæknina ekki virka fyrir þig, þá hefur þú bara samband innan 30 daga frá skráningu og ég endurgreiði þér námskeiðið að fullu.

Algengar spurningar

Þarf ég að sitja hjá barninu á meðan það æfir sig?

Ég mæli með því, þó svo að barnið geti unnið sjálfstætt eftir stutta kynningu. Best er að líta á þetta sem samveru og stuðningur ykkar og áhugi getur skipt sköpum, eins og í heimalestrinum sjálfum.

Hentar þetta börnum með lesblindu og ADHD líka?

Já. Æfingarnar eru stuttar og einfaldar, sem hentar oft vel börnum sem eiga erfitt með einbeitingu í lengri lotum.

Hvenær má búast við breytingum?

Það er einstaklingsbundið, en margir foreldrar sjá fyrstu breytingar eftir 2–3 vikur ef æfingunum er fylgt daglega.

Hentar þetta eldri börnum eða bara þeim sem eru að byrja að lesa?

Þjálfunin hentar breiðum aldurshópi - bæði börnum sem eru rétt að byrja og þeim sem hafa lengi glímt við lestrarörðugleika.

Hvað ef þetta hentar okkur ekki?

Engar áhyggjur, þið eruð með 30 daga endurgreiðsluábyrgð, svo þið getið prófað án áhættu.  Sendið mér tölvupóst innan 30 daga frá skráningu og endurgreiðsla  er lítið mál.

30% AFSLÁTTUR!

Skráning kostar aðeins kr. 11.900.-8.330.- /mán.
Þú stjórnar æfingatímanum, engin binding og 30 daga endurgreiðsluábyrgð!
Kaupaukar að virði kr. 43.100.-/mán!

Við skráningu færðu strax fullan aðgang að Lesum hraðar.  Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa á 30 daga fresti þar til sagt er upp af notanda.  
Engin binding og 30 daga endurgreiðsluábyrgð! Nánari upplýsingar um skilmála finnur þú hér.

Insert Content Template or Symbol
>