vertu besti stuðningsaðili barnsins þíns

ER HEIMALESTURINN AÐ BRJÓTA NIÐUR BARNIÐ ÞITT?

heimalestur - lestrarkennslunámskeið fyrir foreldra

ERTU AÐ GERA MISTÖK Í HEIMALESTRINUM?

Ómarkvissar leiðbeiningar og óskýr inngrip og aðfinnslur geta gert heimalesturinn að kvíðvænlegri stund fyrir nemendur sem eiga erfitt uppdráttar í lestri.

Skilar heimalesturinn litlu?

Hafið þið sinnt heimalestri vel án þess að uppskera í samræmi við alla vinnuna?  Ef þú gætir orðið besti stuðningsaðili barnsins þíns, hvers vegna ættir þú ekki að vilja það?

Stór hluti lestrarnámsins er í höndum foreldra sem vilja gera vel, en hafa litla sem enga þekkingu á lestrarkennslu

Kennslubrestir sem geta orsakað erfiðleika í lestri:

  • Foreldrið þekkir ekki einkenni lesblindu/dyslexiu
  • Foreldrið bregst ekki rétt við mistökum
  • Heimalesturinn er stefnulaus (og nemandinn finnur það)
  • Fyrirmæli og viðbrögð eru tilviljanakennd
  • Heimalesturinn einnkennist af pirringi og úrræðaleysi

TAKTU LESTRARNÁMIÐ FÖSTUM TÖKUM - HEIMA!

Námskeiðið er fyrir foreldra sem:

  • Þú vilt taka heimalesturinn fastari tökum
  • Þér finnst eins og þú vitir ekki nægilega vel hvað þú ert að gera
  • Þér finnst heimalesturinn stefnulaus og tilviljanakenndur
  • barnið þitt glímir við lestrarvanda eða þú óttast að það dragist aftur úr
KYNNIR

FJARNÁMSKEIÐIÐ HEIMALESTUR

Lestrarkennslunámskeið fyrir foreldra


LOKSINS GETUR ÞÚ ORÐIÐ BESTI STUÐNINGSAÐILI BARNSINS ÞÍNS!

HEIMALESTURINN TEKUR NÚ ÞEGAR MIKINN TÍMA, SVO HVERS VEGNA EKKI AÐ GERA ÞETTA RÉTT?

Fyrir hverja?

Námskeiðið er fyrir foreldra barna í 1.-10. bekk sem vilja taka heimalesturinn föstum tökum og öðlast fulla stjórn á lestrarnámi barnsins.

Hvers vegna mikilvægt?

Til að tryggja að lestrarnámið komist hnökralaust af stað og tryggja framfarir.  Námskeiðið hjálpar líka þeim sem standa höllum fæti í lestri og þurfa á inngripi að halda.

Hvers vegna?

Námskeiðið er samið af Kolbeini Sigurjónssyni, sem lærði lesblinduráðgjöf 2003 og hefur sérhæft sig í úrræðum tengdum lestri og lestrarörðugleikum.

Hve langt er námskeiðið?

Námsefninu er skipt upp í 6 vikur en aðgangur að námskeiðinu er virkur í 3 mánuði svo allir geta í raun farið á sínum hraða.

Heimalestur er vandað fjarnámskeið fyrir foreldra sem vilja færa lestrarkennslu barnsins upp á næsta stig.  Hvort sem barnið glímir við lestrarörðugleika eða ekki, þá er þetta tækifæri fyrir foreldra til fræðast og bæta lestrarkennsluna verulega.

HEIMALESTUR
Lestrarkennslunámskeið fyrir foreldra

3 GÓÐAR ÁSTÆÐUR TIL AÐ VERA MEÐ

1

Þekking

Foreldri sem veit meira um lestrarörðugleika bregst betur við mótlæti og leiðbeinir barni sínu betur á allan máta.

2

Öryggi

Með því að taka heimalesturinn fastari tökum verðið þið sjálfstæðari og þannig síður háð aðstoð frá skóla - aðstoð sem oft kemur of seint, eða alls ekki.

3

Umhyggja

Lestrarkennslan er í forgangi fyrstu árin.  Á endanum snýst þetta um að veita barninu þínu bestu mögulega lestrarkennslu sem völ er á - heima.

LESTRARVANDI HVERFUR EKKI AF SJÁLFU SÉR - ÞAÐ GETUR ÞVÍ KOSTAÐ MARGFALT MEIRA AÐ GERA EKKI NEITT!

100% Endurgreiðsluábyrgð!

Engin áhætta, ég ábyrgist árangurinn með 30 daga endurgreiðsluábyrgð.

100%

ÁBYRGÐ Í 30 DAGA!

Ég hef fengið meiri upplýsingar og lært meira núna en á öllum fundum með skólanum - öll árin frá upphafi!

Sigríður // Foreldi

Ég lærði tvímælalaust nýja hluti á námskeiðinu og fékk nýja sýn á lestrarnámið.  Eftirfylgnin var mjög góð og ég er hæstánægður með upplýsingaflæðið.

Lárus Gunnarsson // Foreldri

Ég öðlaðist betri skilning á vanda barnsins og lærði leiðir til hjálpar sem ég gat ekki fundið að væru til staðar í skólanum.  Öllum fyrirspurnum var líka svarað fljótt og vel.

Guðrún Helgadóttir // Foreldri


Höfundur námskeiðs

Um mig

Kolbeinn Sigurjónsson

Ég heiti Kolbeinn Sigurjónsson og hef starfrækt Betra nám frá árinu 2004.  Ég lærði lesblinduráðgjöf hjá Davis Dyslexia Association og tók virkan þátt í að innleiða Davis lesblinduaðferðafræðina á Íslandi, fyrst sem framkvæmdastjóri Lesblind.com sem leiddi af sér stofnun Lesblindusetursins í Mosfellsbæ.  Betra nám tók svo við keflinu árið 2008.

Kolbeinn Sigurjónsson

Auk þess að kenna á einkanámskeiðum hefur Kolbeinn haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra fyrir ýmsa aðila, s.s. Mími símenntun, Fræðslunetið á Suðurlandi, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Hringsjá ofl.

Kolbeinn hefur verið ráðgefandi í fjölmiðlum varðandi umræðu um nám og námsörðugleika


FÆRÐU 90% ENDURGREITT?

Heimalestur er námskeið fyrir foreldrið - ekki barnið.  Þess vegna gætir þú fengið allt að 90-100% námskeiðsgjaldsins endurgreitt frá þínu stéttarfélagi.  Vinnumálastofnun endurgreiðir allt að 70%.

Þannig virkar námskeiðið

Umbyltu heimalestrinum á 6 vikum!

Vika 1-2

Þú fræðist um lestrarörðugleikar og lestrarkennslu.  Heimalestur er lykillinn að farsælu lestrarnámi og þá þarf foreldrið að búa yfir þekkingu og færni til að leiðbeina barninu með sem bestum hætti. 

Fyrsta skrefið er að brjóta lesturinn niður í einfalda hluta og ná fullri stjórn á lestrartækni barnsins.  Hér skimum við líka fyrir brestum sem geta hamlað framförum.

Vika 3-4

Við brjótum niður ávana sem geta dregið úr árangri og komið í veg fyrir að lesturinn flæði og nemandinn nái betri leshraða.  Áherslan er á flæði og öryggi.

Vika 5-6

Að lokum tökum við fyrir lesskilning og kennum nemandanum aðferðir til að bæta athygli við lestur og auka lesskilning.  Hér eru öll púslin komin saman og foreldri og barn halda áfram að beita lestrartækninni til að bæta árangur og framfarir í lestri.

Eftir námskeiðið hefur þú öðlast þekkingu og færni til að halda áfram að beita lestrarkennslunni eins lengi og þurfa þykir - með eins mörgum börnum og þörf er á!

Lesarar efnis

Kolbeinn Sigurjónsson

Lesblinduráðgjöf

Kolbeinn er höfundur námskeiðsins og leiðbeinandi foreldra.

Guðni Kolbeinsson

Þýðandi og þulur

Guðni les valda kafla námskeiðsins um eðli og einkenni lestrarörðugleika.


Þetta lærir þú:

Heimalesturinn í lag á 6 vikum!

✅Lærðu að þekkja betur lesblindueinkenni og viðbrögð við þeim
✅ Heimalesturinn tekinn í gegn í þremur markvissum skrefum
✅ Ítarlegar leiðbeiningar og stuðningur

100% endurgreiðsluábyrgð í 30 daga

SKRÁNING

Vertu með!

✅Aðgangur að öllu efni í 3 mánuði
✅Þitt heimasvæði

✅Vönduð myndbönd

✅Kennsluhandbók (PDF)
✅Persónulegur stuðningur

Verð kr. 39.900.-

(Aðeins kr. 3.325.- hver vika!)

Engin áhætta.  100% endurgreiðsluábyrgð í 30 daga frá skráningu.

Spurt og svarað
Lestrarkennsla fyrir foreldra

Barnið mitt sýnir lestri lítinn áhuga, er það vandamál?

Börn sem glíma við lestrarvanda sýna lestri oft lítinn áhuga.  Það er eðlilegt í ljósi stöðunnar svo það er alls ekki frágangssök og þjálfunin ætti að geta gengið vel og haft góð áhrif á lesturinn þegar fram í sækir.

Barnið mitt hefur ekki verið greint lesblint, skiptir það máli?

Það skiptir í raun ekki máli.  Lestrarerfiðleikar fara ekki fram hjá neinum og síst þér, foreldrinu.  Það sem skiptir máli er að hjálpa barninu sjálfu, sem er í þeirri stöðu að fá ekki þá hjálp sem það þarf.  Barnið getur ekki tapað á betri lestrarkennslu, sama hvort lesblinda er í spilinu eða ekki.

Hve langan tíma tekur námskeiðið?

Námskeiðinu er stillt upp sem 6 vikna námskeiði  Þú hefur aðgang að mér og öllu efni námskeiðsins helmingi lengur, eða 12 vikur (3 mánuði).  Þetta er eingöngu viðmið og þú færð aðgang að efninu jafnóðum svo hraðinn er í sjálfu sér sveigjanlegur.

Hvað með Lesum hraðar lestrarþjálfunina?

Lesum hraðar þjálfar viðbragð og snerpu sem bætir nefnuhraða og er afar mikilvægur þáttur í lestri.  Lesum hraðar hefur í sjálfu sér ekkert með heimalesturinn að gera.  Í stuttu máli má segja að Lesum hraðar sé fyrir barnið, en Heimalestur er fyrir foreldrana.

>