Minnispúkinn - Fjarnámskeið
GLEYMIR ÞÚ NÖFNUM?
viltu geta munað miklu meira - án erfiðis?
Þú getur munað miklu meira - ef þú bara notar minnið rétt
Hissa hvað þetta er auðvelt!
Maria Cederborg
Viltu stórbæta minnið á einungis 4 vikum?
Það er algengur misskilningur að minnið sé ýmist gott eða slæmt. Minnið er ekki líffæri, og þess vegna er minnisgetu okkar engin takmörk sett. Með einfaldri minnistækni getur þú margfaldað minnisgetuna á stuttum tíma.
Þetta er svo spennandi og skemmtilegt að ég get ekki beðið eftir næstu viku!
Eva Aasted
Vertum með á vönduðu og skemmtilegu fjarnámskeiði í minnistækni og lærðu að stórbæta minnisgetuna!
Kannast þú við eitthvað af eftirfarandi?
Minnisnámskeiðið byggir á aldagömlum aðferðum sem hentar fólki á öllum aldri. Minnistækni er auk þess frábær heilaleikfimi sem skilar sér í ótrúlegum minnisframförum og þú sérð árangurinn strax!
"Algjör uppljómun!" - Nanna Teitsdóttir
90% ENDURGREITT?
Þú gætir fengið allt að 90-100% námskeiðsgjaldsins endurgreitt frá þínu stéttarfélagi. Vinnumálastofnun endurgreiðir allt að 70%!
100%
ábyrgð
engin áhætta - 100% ábyrgð
Ef svo ólíklega vill til að minnistæknin tvöfaldar ekki minnisgetu þína, færðu námskeiðið endurgreitt! Allt sem þú þarft að gera er að senda okkur tölvupóst innan 30 daga frá skráningu og óska eftir endurgreiðslu.
Kostir minnistækni
Einföld
Allir geta lært minnistækni. Ég hef séð fólk frá 7-70 ára ná frábærum árangri.
Skemmtileg
Minnistækni er holl og góð heilaleikfimi sem eykur sjálfstraust og færni.
Gagnleg
Minnistækni nýtist þér bæði í daglegu lífi og starfi.
Þetta segja nemendur
Sæll Kolbeinn. Ég tók þátt í námskeiðinu hjá þér fyrir ca 2 árum. Mér fannst það alveg meiriháttar gott, og ég er alveg að nýta mér það enn. Þetta ættu sem flestir að gera! Kærar kveðjur og takk fyrir mig.
Þórey Eyjólfsdóttir
Sæll Kolbeinn. Þetta er svo spennandi og skemmtilegt að ég get ekki beðið eftir næstu viku. Akkurat það sem ég þurfti!
Mér fannst þetta mjög áhugavert. Fyrst mundi ég minna en helminginn, en þegar ég notaði minnistæknina gat ég þulið allt upp. Ég er 76 ára gömul kona og ég finn fyrir því að skammtímaminnið er ekki eins og það var.
Ég verð að segja að ég gat virkilega gert mig “heillandi” í augum nokkurra barnabarna…..gat hreinlega þulið upp fram og tilbaka. Þetta vakti mikla lukku....frábært…….þannig að þetta er skemmtilegur leikur :):) hjálpar okkur öllum…… (frá 10 ára til 71 árs.) …
Mun mæla með við alla
Komdu sæll Kolbeinn! Takk fyrir gagnlegt, skemmtilegt og vel framsett námskeið,sem ég veit að á eftir að koma mér að góðum notum í framtíðinni.
Ég mun mæla með því við alla sem efast um eigið minni og vildigjarnan að þessi einfalda tækni væri kennd í grunnskólu öllum til hjálpar til að muna 🙂 Kær kveðja, Júlí
Mér hefur gengið betur en ég reiknaði með. Mér leyst ekkert á þetta í fyrsta verkefninu, en það var allt annað þegar lengra leið 😊
Fyrirmælin eru mjög góð og gott að geta stoppað þegar það á við.
Minnistækni bætir lífsgæðin
Í starfi:
Minnistækni er öflugt verkfæri fyrir fólk á vinnumarkaði sem umgengst marga aðila og daglegt minni er undir álagi.
Í daglegu lífi:
Minnistækni er notadrjúg í hversdagsleikanum, hvort sem er heima við eða á ferðalögm.
Í starfi:
Minnistækni er frábær fyrir fólk á besta aldri, sem á erfitt með að muna nöfn eða finnur fyrir vaxandi óöryggi sem getur tengst erfiðleikum við að muna hluti.
Heilaleikfimi
Minnistækni byggir á hollum og góðum æfingum sem skerpa á minni og bæta einbeitingu. Að æfa heilann er jafn mikilvægt og hver önur heilsurækt.
Betra minni eykur sjálfstraust

Finnst þér erfitt að læra ný nöfn og fyllist þú óöryggi í aðstæðum eins og veislum eða á vinnustað? Okkur finnst traustvekjandi þegar einhver man nafn okkar. Að sama skapi getur það farið öfugt ofan í okkur ef einhver man það ekki, eða notar jafnvel vitlaust nafn! Minnistækni gerir þér kleift að læra ný nöfn á færibandi, án vandræða.
Auður Ragnarsdóttir, kennari í Grunnskóla Bolungarvíkur bauð nemendum sínum að læra minnistækni Betra náms. 96% nemendanna sögðu minnistæknina nýtast sér í náminu. 96 PRÓSENT!!
Um höfundinn
Kolbeinn Sigurjónsson er sérfræðingur í lesblinduráðgjöf frá DDAI og tölvunarfræðingur. Auk þess að hjálpa nemendum sem glíma við námsörðugleika vegna lesblindu eða ADHD, hefur Kolbeinn astoðað nemendur á öllum skólastigum við að sér minnistækni í námi. Kolbeinn kenndi um 10 ára skeið eigið námskeið í minnistækni hjá Hringsjá, en auk þess hefur hann kennt minnistækni hjá Fræðsluneti Suðurlands, miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og Mími símenntum.

Auk þess að kenna á einkanámskeiðum hefur Kolbeinn haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra fyrir ýmsa aðila, s.s. Mími símenntun, Fræðslunetið á Suðurlandi, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Hringsjá ofl.







VERTU MEÐ!
lesarar
Þórunn Lárusdóttir, leikkona
Kolbeinn Sigurjónsson, leiðbeinandi
Um námskeiðið
- 1100% fjarnámskeið. Þú lærir heima, þegar þér hentar.
- 2Stutt og skýr kennslumyndbönd. Engin flókin, skrifleg fyrirmæli. Þú horfir og hlustar eins oft og þú þarft.
- 3Skemmtilegar æfingar hjálpa þér að ná góðum tökum á minnistækninni.
ÓKEYPIS STUÐNINGUR
Með skráningu fylgist ókeypis stuðningur eftir þörfum.
Tölvupóstur eða símtal, þitt er valið.
SKRÁNING
11.900.- /mán
Við skráningu færðu strax fullan aðgang að námskeiðinu. Engin binding og 30 daga endurgreiðsluábyrgð!
Kostir minnistækni
Með því að læra minnistækni lærir þú aðferð eða tækni sem nýtist þér aftur og aftur um ókomin ár. Í fjölmörgum fögum!
Snilldin liggur í ótrúlega einföldum "trixum" sem bókstaflega margfalda minnisgetuna. Með því að nýta minnistækni í námi má minnka lestrarálag og tíma sem fer í lestur og endurtekningar.
Minnistækni ætti að vera jafnsjálfsögð í námi og hlaupaskór á hlaupabrautinni. Bóklegt nám án minnistækni er eins og að hlaupa í gúmmístígvélum: Mögulegt, en þreytandi, leiðinlegt og þú kemur örugglega síðastur í mark.
90% endurgreitt?
Flest stéttarfélög niðurgreiða námskeiðskostnað um allt að 90% - og Vinnumálastofnun um 70%!