áhyggjur af lestrinum?
LAGAÐU LESTURINN - HEIMA!
KOLBEINN SIGURJÓNSSON, LESTRARRÁÐGJÖF OG NÁMSKEIÐ
Hjálp í lestri?
Lesum hraðar er einstök viðbragðsþjálfun sem eyðir hiki, óvissu og stafruglingi með því að færa lesturinn úr meðvitaðri hljóðun yfir í sjálfvirkt flæði.
Bara 5 mínútur á dag
Þetta er ekki hefðbundin kennsla eða leikur, heldur hnitmiðað æfingakerfi sem byggir upp sjónrænan orðaforða og skilar mælanlegum árangri.
Engar bækur
Æfingarnar krefjast ekki bóka og taka stuttan tíma, svo þær henta vel samhliða hefðbundnum heimalestri.
Heimalesturinn vandamál?
Láttu ekki mótþróa og erfiðleika eyðileggja lestrarstundina. Barnið þitt getur líka sinnt heimalestrinum og aðlagað textann að sínum þörfum.
Hæ,
loksins ertu hér!
Ég heiti Kolbeinn og hef hjálpað foreldrum og nemendum að ná betri tökum á lestri og stærðfræði í rúm 20 ár. Á þessum tíma hef ég þróað fjölda námskeiða sem eru sérsniðin að þörfum barna og unglinga sem glíma við erfiðleika í tengslum við lestur og stærðfræði.

20 ára sérhæfing í glímunni við lestrar- og stærðfræðiörðugleika
Vönduð fjarnámskeið sem eru einföld í notkun, spara tíma og eru hagkvæmari en einkatímar
Ummæli foreldra og nemenda
Mig langar til að láta þig vita að við erum mjög ánægð með námskeiðið og sonur okkar sem er í 2. bekk hefur náð góðum árangri með æfingunum og er mjög jákvæður gagnvart því að gera æfingarnar.
Ég fekk þessi skilaboð frá kennaranum hans fyrir páska:
"Kristinn tók lestrarpróf í gær. Það er mikil framför, hann fór úr 25 orðum í maí í fyrra í 115 orð nú í byrjun apríl!!!!!
Lesum hraðar forritið hefur haft jákvæð áhrif fyrir son minn og hann sýndi líka mikinn metnað í að fara aftur í gegnum borð til að sjá árangurssúlurnar lækka meira.
Takk fyrir frábært námskeið!
Sé strax breytingar
Strax munur eftir stuttan tíma
Sonur minn er með ADHD og hefur lestur gengið brösuglega hjá honum.
Það var mikið hik, og hann las orðin staf fyrir staf. Hann átti það líka til að ruglast á nokkrum stöfum.
Æfingarnar hafa gengið ótrúlega vel. Æfingarnar eru stuttar og mjög hnitmiðaðar, og appið er æðislegt
Ég sá strax mun hjá honum eftir mjög stuttan tíma. Ótrúlega gaman að vinna þetta með honum og honum finnst þetta líka skemmtilegt 🙂
100%
ÁBYRGÐ
100% endurgreiðsluábyrgð í 30 daga!
Fjarnámskeiðin eru vönduð og þú hefur aðgang að persónulegri aðstoð til að tryggja að ykkur gangi sem best. Ykkar árangur skiptir öllu máli, enda stendur ykkur til boða full endurgreiðsla innan 30 daga ef námskeiðið stendur ekki undir væntingum.
BN KLÚBBURINN
Öll námskeið á einum stað - fyrir eitt gjald!
Áhyggjur af náminu? Engar áhyggjur, aðild að klúbbnum veitir ykkur aðgang að öllum námskeiðum Betra náms fyrir brot af kostnaðinum.
Ef þú átt barn eða börn sem glíma við áskoranir í náminu, lestrar- eða stærðfræðiörðugleika, þá er klúbburinn fyrir ykkur!
GREINAR OG FRÓÐLEIKUR
Er barnið þitt lesblint?
Hefur heimalesturinn skilað litlum árangri?
Hvort sem barnið þitt er lesblint eða ekki,
þá eru miklir erfiðleikar í lestri vísbending um
að tími sé kominn á aðra nálgun.
Sérhæfð ráðgjöf og námskeið fyrir nemendur sem eiga erfitt updráttar í skóla. Við einbeitum okkur að lestrar- og stærðfræðiörðugleikum og bjóðum í dag upp á einfaldar og hagkvæmar lausnir í formi heimaþjálfunar fyrir þennan hóp.
Um höfundinn
Kolbeinn Sigurjónsson lærði lesblinduráðgjöf hjá Davis Dyslexia Association og hefur starfrækt Betra nám frá árinu 2004. Kolbeinn hefur sérhæft sig í úrræðum tengdum námsörðugleikum og hefur sinnt þjálfun, kennslu og ráðgjöf um árabil.

Auk þess að kenna á einkanámskeiðum hefur Kolbeinn haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra fyrir ýmsa aðila, s.s. Mími símenntun, Fræðslunetið á Suðurlandi, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Hringsjá ofl.






