|
miðvikudagur 8. september 2010 |
|
|
|
| RSS feed |
Fáðu nýjustu fréttirnar beint á skjáborðið  |
|
|
Human Givens ráðgjöf (HGR)
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Á síðustu árum hefur Human Givens ráðgjöf (HGR) rutt sér til rúms, ekki síst vegna þess góða árangurs sem fólk hefur náð með því að beita aðferðunum.
Human Givens ráðgjöf (HGR) hefur það að markmiði að ná árangri í sem allra fæstum tímum (flestir viðskiptavinir sækja aðeins 2 tíma).
Hvað er Human Givens ráðgjöf (HGR)? HGR er aðferðafræði sem sameinar gamla og nýja þekkingu á virkni mannshugans. Ráðgjöfin hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir góðan árangur. Ráðgjöfin er í senn einföld og skilvirk. Við fæðumst öll með ákveðið þekkingarmynstur í huganum. Þessi mynstur og hvatar hafa þróast með manninum í milljónir ára og stjórnast tilfinningaleg viðbrögð okkar að miklu leyti af þessum hvötum.
"Human Givens" dregur nafn sitt af þessum tengslum okkar við þróunarsögu okkar - Human Givens er "hugarforritin" sem við fengum í arf.
Í hvaða tilfellum getur HGR hjálpað? HGR kann að reynast vel í fjölmörgum tilfellum sem við förum af sporinu, m.a. má nefna: - Kvíða (m.a. prófkvíða)
- Fælni (myrkfælni, félagsfælni, lofthræðsla, innilokunarkennd, hundafælni,flughræðsla o.s.frv).
- Lítið sjálfstraust
- Svefnvandamál
- Depurð/þunglyndi
- Reiði
HGR ráðgjöf er eingöngu samtalsmeðferð, lyfjalaus og algjörlega skaðlaus. Ólíkt mörgum meðferðarúrræðum þá er markmið Human Givens ráðgjafar að hjálpa í eins fáum viðtalstímum og hægt er. Árangur Sem fyrr segir er það ekki síst góður árangur aðferðarinnar sem ber hróður hennar út. Reynslan hefur sýnt að HGR er bæði fljótlegt og öflugt úrræði. Human Givens Institution (HGI) fylgist með framvindu og margar rannsóknir eru í gangi sem styðja góðan árangur. HGI hvetur ráðgjafa til að vinna fyrir opnum tjöldum og gerir það HGI kleift að safna gögnum varðandi árangur og framvindu.
Rannsóknargögn (HGI Practice Research Network) sýna að:
- meðal-tímafjöldi hjá ráðgjafa er einungis 3.6.
- Flestir viðskiptavinir telja sig einungis þurfa 2 tíma.
- 90% viðskiptavina hitta ráðgjafa 6 sinnum eða sjaldnar.
Hverjir veita Human Givens ráðgjöf? Human Givens stofnunin (HGI) sér um þjálfun og leyfisveitingar til handa ráðgjöfum. Það færist sífellt í vöxt að meðferðaraðilar noti Human Givens í sínu starfi, þ.m.t. læknar, hjúkrunarfræðingar, félagsfræðingar ofl.
Judith Shaw (BSc, BA, PGCE,
ADS) Judith Shaw hefur 10 ára reynslu af Davis aðferðafræðinni og hefur
hún starfað við ráðgjöf og kennslu um árabil. Í dag starfar hún sem
ráðgjafi í Kent á Englandi og er hún bæði einstaklingum sem fyrirtækjum
innan handar. Hún hefur diploma gráðu frá HGI (Human Givens
Institution) en auk þess er hún faglærður Davis ráðgjafi frá alþjóðlegu Davis
samtökunum (DDAI). Judith hefur um árabil leiðbeint lesblindum
nemendum og m.a. verið fastur ráðgjafi háskóla í Englandi. 2003 fluttist Judith til Íslands og tók þátt í innleiðingu Davis aðferðafræðinnar. Vann hún mjög árangursríkt og óeigingjarnt starf hér á þeim tíma.
Judith
skilur nokkuð í íslensku en ráðgöfin fer fram á ensku. Hún gætir
þess að útskýra mál sitt á rólegan og yfirvegaðan hátt og er fyllilega
meðvituð að þiggjandi ráðgjafarinnar er ekki að nota eigið móðurmál.
Betra nám og Human Givens? Í fimm ár hefur Judith verið í góðum og miklum samskiptum við Davis ráðgjafa á Íslandi, auk góðra vina sem hún eignaðist hér á sínum tíma. Hún hefur brennandi áhuga á ráðgjöf sem hefur með nám og líf að gera og hefur hún leitað sér þekkingar og aflað sér reynslu árum saman á því sviði.
Við sem störfum á þessu sviði finnum sterklega fyrir því hve mörg tilfinningaleg vandamál geta tengst námsörðugleikum. Oft er um að ræða félagsleg vandamál, samskiptavandamál, lítið sjálfsmat og svo mætti lengi telja. Það er því kærkomið að nýta tengsl hennar með því njóta þjónustu hennar á þessu sviði hér á landi. Human Givens ráðgjöf er veitt eingöngu af Judith Shaw og er ráðgjöfin á hennar vegum. Viltu vita meira? Hægt er að senda fyrirspurnir (á íslensku) - tekið er vel á móti öllum fyrirspurnum. Smelltu þá hér og veldu "Human Givens Ráðgjöf" úr valglugganum.
|
|
|
|
lesblinda dyslexia reikniblinda dyscalculia athygli einbeiting einbeitingarskortur dyspraxia námsörðugleikar Fagþjónustu undir nafni Davis®; Davis®
lesblinduleiðréttingar, Davis® táknmeistrunar, Davis® athyglisþjálfunar,
Davis® stærðfræðimeistrunar og Davis® námstækni, mega þeir einir
veita sem lokið hafa þjálfun og fengið leyfisbréf Alþjóða Davis lesblindusamtakanna
- - - Betra nám - Kjarna, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, s: 5666664, betranam@betranam.is - hafa samband. lesblinda dyslexia stærðfræði hraðlestur minnistækni mind-map hugarkort Human-Givens
|
|